um fundarstjórn forseta.
Virðulegur forseti. Hér þurfa allir að halda sig á mottunni. En yfirlætisfull ræða hv. þm. Sigurjóns Þórðarsonar hérna áðan var augljóslega ekki gerð til þess að þingstörfin myndu ganga vel hér í dag. Í gær átti það sér stað að við sitjum hérna uppi með fjármálaáætlun ríkisstjórnar sem við eigum að ræða um við fagráðherrana og þá vantar sirka 200 blaðsíðna gögn til að við getum átt raunverulegt samtal vegna þess að hæstv. ríkisstjórn hafði tekið það upp á sitt einsdæmi að breyta algjörlega fyrirkomulaginu, hvernig ætti að leggja þetta fram, án þess að kynna það minni hlutanum. Og þó að hæstv. forseti hafi á endanum tekið þá ákvörðun að fresta málinu þá hefði auðvitað átt að gera það miklu, miklu fyrr. Það er fullt af áhugaverðum málum á dagskrá í dag, hv. þingmaður, og ég sé ástæðu til að taka til máls í þeim öllum.