um fundarstjórn forseta.
Virðulegi forseti. Það er auðvitað algerlega óboðlegt að hv. þingmenn komi í pontu með tillögu af þessum toga af því tilefni að hér gerðist það í gær að hv. þingmenn eins og sú sem hér stendur mættu til leiks til að taka þátt í umræðu sem þeir áttu í stökustu vandræðum með að undirbúa sig fyrir. Ég var hér þrælspennt að taka þátt í umræðu um fjármálaáætlun sem snýr að utanríkismálum, hafandi verið aðstoðarmaður utanríkisráðherra, hafandi verið formaður hv. utanríkismálanefndar, og sá mér bara ekki fært að gera það. Ég hafði ekki upplýsingarnar til þess. Og að gera því skóna að það sé einhver friðþæging í garð stjórnarandstöðuþingmanna að veita þeim upplýsingar sem þeir þurfa til þess að geta tekið hér þátt í almennilegri umræðu, sem er mikilvægt að eigi sér stað, það er bara óboðlegt.