156. löggjafarþing — 26. fundur,  4. apr. 2025.

um fundarstjórn forseta.

[11:10]
Horfa

Forseti (Þórunn Sveinbjarnardóttir):

Forseti vill taka fram í tilefni þessarar umræðu um fundarstjórn forseta að forseti átti langa fundi síðdegis í gær og fram á kvöld með þingflokksformönnum á hinu háa Alþingi. Þar var sú staða sem upp kom í fyrri umræðu um fjármálaáætlun rædd ítarlega. Niðurstaðan varð að forseti frestaði fyrri umræðu um fjármálaáætlun svo að hægt væri að taka upp þráðinn í næstu viku. Það var gert í góðri sátt við þingflokksformenn og það er ástæða til þess að taka það fram hér í tilefni þessarar umræðu um fundarstjórn forseta.