um fundarstjórn forseta.
Frú forseti. Undir þessum lið hafa komið fram ásakanir um að ég hafði verið að einhverju leyti að ögra stjórnarandstöðunni. Það er af og frá. Það sem ég gerði í ræðu minni var að hrósa hæstv. forseta fyrir lipurð og ég vona að menn geti ekki túlkað það svona illa. Það var ekkert yfirlætislegt við það heldur var ég bara minna okkur hér sem störfum í þessum sal á skyldur okkar, þ.e. að störfin endurspegli lýðræðið, mál fái framgang, mál fái að fara inn í nefndir þannig að samfélagið geti gert athugasemdir. Er það eitthvað slæmt? Ég segi ekki annað en það við hv. þingmenn í stjórnarandstöðunni: Ekki taka þessu svona illa. Þetta var gert af góðum hug. Ég var að rétta fram sáttarhönd. Það var ekki gert af neinu yfirlæti heldur til þess að tryggja hér góðan brag á þingstörfum. Mér finnst það skipta máli. Við eigum auðvitað að horfa til þess hvernig þetta starf sem við erum hér að sinna, hvernig það varpar út í samfélagið. Reynum að láta þessi störf hér ganga þokkalega vel fyrir sig.