156. löggjafarþing — 26. fundur,  4. apr. 2025.

um fundarstjórn forseta.

[11:12]
Horfa

Jón Gunnarsson (S):

Virðulegur forseti. Það er tilefni til að ræða þetta undir þessum lið, fundarstjórn forseta. Við erum auðvitað að beina því til forseta að ræða við þingmenn sem koma upp með þessum hætti. Það var ekki af neinu tilliti við minni hlutann sem umræðu var frestað í gær. Það var út af stórkostlegum mistökum við framlagningu fjármálaáætlunar, stórkostlegum mistökum sem munu tefja málin, ekki við. Svo kemur hv. þingmaður upp og vandar um fyrir þingmönnum um það hvað þeir eigi að tala um og hvernig þeir eigi að tala. Svo kemur hann hér og segir okkur að það sé af góðum hug. Það hefur örugglega verið af góðum hug sem þessi sami hv. þingmaður vandaði um fyrir fjölmiðlum og sagðist bara vilja taka þá út af fjárlögum af því að þeir skrifuðu ekki nægilega vel um hann og hans flokk. Þessi sami flokkur var núna að skipa í stjórn Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar og það er allt saman fólk af listum flokksins sem fer inn í stjórnina og öllum reyndum stjórnarmönnum öðrum hent í burtu. Það er bara guðs mildi að vald þessa flokks skuli ekki vera meira á háttvirtu Alþingi Íslendinga ef þessi vinnubrögð eru viðhöfð.