156. löggjafarþing — 26. fundur,  4. apr. 2025.

um fundarstjórn forseta.

[11:14]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S):

Virðulegi forseti. Ég get tekið undir með hv. þm. Sigurjóni Þórðarsyni að hæstv. forseti stóð sig bara nokkuð vel í gær með því að hlusta á þær athugasemdir sem komu og finna einhverja lausn á því með þingflokksformönnum. Ekkert út á það að setja, enda eðlilegt að bregðast við því. Það sem ég geri frekar athugasemdir við er það sem hv. þingmaður var að segja, að það væri eins og ef stjórnarandstaðan tekur þátt í 1. umræðu þingmála, í stórum málum, um orkumál, menntamál, ef svona brotabrot af hópnum í stjórnarandstöðunni dettur það í hug að taka einu sinni til máls í þessum stóru málum þá séum við hér að tefja þingstörf. Vill hv. þingmaður ekki að hér fari fram lýðræðisleg umræða, lýðræðisleg umræða akkúrat í málum frá leynifélagi Kristrúnar Frostadóttur sem gefur engin gögn?