um fundarstjórn forseta.
Virðulegi forseti. Ég vil beina því til hæstv. forseta að forseti hefur auðvitað líka skyldum að gegna gagnvart okkur óbreyttum stjórnarþingmönnum. Sá sem hér stendur var farinn að hlakka til að eiga í tímamótaorðaskiptum við hæstv. félags- og húsnæðismálaráðherra undir þeim málaflokki. En síðan var beðið og beðið og endað á því að umræðunni var frestað. Ég ber að sjálfsögðu traust til forseta til að taka þær ákvarðanir með þingstörf í huga en verð þó að segja að að sjálfsögðu viljum við sjá þessi mál ganga áfram. Mér finnst dálítið skrýtið að tiltölulega hófstilltri ósk um liðleika í umræðum hafi verið mætt með þessu mikla mótlæti hér, mér finnst dálítið að menn geri úlfalda úr mýflugu. Það má alveg taka þeirri ósk neitandi, segja bara: Nei, við ætlum ekkert endilega að vera liðleg. Það er bara sjálfsagt mál. En ég held að hún kalli ekki endilega á þau hörðu viðbrögð sem hér hafa verið sýnd í þingsal. Menn segja þá bara nei og halda áfram með daginn.