156. löggjafarþing — 26. fundur,  4. apr. 2025.

um fundarstjórn forseta.

[11:18]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S):

Frú forseti. Ef þetta var góður hugur þá veit ég ekki hvernig hann er þegar hann er slæmur, hugurinn. Menn verða að kunna sér — ja, hvernig menn tala fyrir hlutum og mæla. Það sem ég hef bent á í þeim nefndum sem ég sit í, í hv. velferðarnefnd og atvinnuveganefnd, er að það skiptir máli að þar sé efnisleg umræða og að vel sé farið í gegnum málin þannig að þetta virki ekki eins og þingið sé stimpilpúði fyrir framkvæmdarvaldið. Það er gríðarlega mikilvægt. Hér er verið að kvarta þegar hv. alþingismenn í minni hluta eru að ræða málin í 1. umræðu á þingi og það er ótrúlegt.

Síðan vil ég segja varðandi fjármálaáætlun: Þetta er náttúrlega ótrúlegt. Fjármálaáætlun er samþykkt í þinginu í desember 2015. Þar eru ákveðnar leikreglur settar upp (Forseti hringir.) og löggjöf um hvernig eigi að standa að málum hér í þingsal. Það hefur verið farið eftir þeim lögum hingað til. Þess vegna kom mér mjög á óvart hvernig þetta var sett upp (Forseti hringir.) núna varðandi gögn og greiningar til að geta tekið efnislega afstöðu til fjármálaáætlunar 2026–2030 sem var lögð fram í vikunni. Það réttasta væri að (Forseti hringir.) klára að meta gögn og greiningar og fresta fjármálaáætluninni fram yfir átta þannig að hægt verði að taka efnislega og með eðlilegum hætti, með gögnum og greiningum, á málinu hér í þingsal.

(Forseti (ÞSv): Hv. þingmaður er minntur á að umræðutími í fundarstjórn forseta er ein mínúta, ekki rúmlega ein og hálf. Hér gilda sömu reglur um alla.)