um fundarstjórn forseta.
Virðulegur forseti. Já, ég reiddist mjög áðan yfir ræðu Sigurjóns Þórðarsonar. Mér fannst svona verið að tala niður til mín þar sem talað var um það að já, það væri allt í lagi að taka örlítið til máls í 1. umræðu og spyrja ráðherra um eitthvað. En mér er aðeins runnin reiðin.
Virðulegur forseti. Það sem gerðist hér í gær var það eina rétta í stöðunni, þ.e. að fresta umræðu um fjármálaáætlun. Í dag höldum við áfram með þingstörfin og eins og hæstv. forseti var að lýsa þá virðist það ganga ágætlega. En réttur þingmanna til að taka til máls er ríkur og þetta er grunnurinn að lýðræðinu. Það er ekki hægt að fara í málþóf í 1. umræðu mála. Hver þingmaður getur bara tekið til máls og átt tvær ræður. Það er mjög takmarkaður tími. Þannig að öll umræða um það hér þegar við erum með mál í 1. umræðu að það sé eitthvert málþóf í gangi á bara ekki rétt á sér. Hún er til þess gerð að kasta rýrð á þingið (Forseti hringir.) og mikilvægi þingstarfa og mikilvægi okkar sem erum í stjórnarandstöðu og eigum að veita þessari ríkisstjórn aðhald.