um fundarstjórn forseta.
Frú forseti. Hv. þingmaður átti hér alveg ótrúlega innkomu. Hér var ekki farið að lögum, hv. þingmaður. Þess vegna fór svona mikill tími í gær í að ræða málin. Það þurfti endurteknar, síendurteknar ábendingar um það að hér væri ekki verið að vinna eins og löggjafinn gerir ráð fyrir. Svo er talað um að hér sé eitthvað óeðlilegt í gangi. Meira að segja rétt í þessu var hæstv. forseti að staðfesta það að hér hefðu bara þingstörf gengið með ágætum hætti. Það hefur komið fram frá hæstv. forseta að hér sé ekkert óeðlilegt í gangi.