156. löggjafarþing — 26. fundur,  4. apr. 2025.

um fundarstjórn forseta.

[11:31]
Horfa

Jóhann Friðrik Friðriksson (F):

Frú forseti. Mig langar bara að nefna það hér að við áttum afskaplega innihaldsríka og góða umræðu við ráðherra orkumála varðandi orkulögin. Ráðherrann brást mjög vel við öllum fyrirspurnum, hvort sem þær komu frá stjórn eða stjórnarandstöðu, enda um gríðarlega mikilvægt mál að ræða. Eins og forseti hefur nefnt þá virðist hafa gengið bara nokkuð vel hjá þessari ríkisstjórn að koma málunum inn. Það er vel. Ég kvartaði sjálfur yfir því á stundum á síðasta kjörtímabili að það gengi hægt. Það er enginn feluleikur á þingi þannig að það er auðvelt að fletta bara upp hversu mikið menn og konur tala hér. Ég hef nú ekki farið fram hjá mér í þeirri umræðu. En það eru mikilvæg mál á dagskrá, m.a. skattar og gjöld sem eru á dagskrá í dag. Þar er ríkisstjórnin sjálf að gera bara nokkuð ágæta hluti sem er mikilvægt að taka undir og ræða, þannig að þetta er alla vegana. Ég bara hlakka til umræðunnar og ég held að við ættum að vera hafin yfir það að vera að rífast hér um smáatriði og einhenda okkur í umræðuna og gera hana gagnlega.