um fundarstjórn forseta.
Frú forseti. Ég kem hérna upp í annað sinn í þessari fundarstjórn varðandi það sem hv. þm. Kolbrún Baldursdóttir kom inn á áðan um raforkulögin sem við höfum rætt hérna mikið í vikunni, gríðarlega mikilvæg umræða. Það er fátt mikilvægara í þessu landi heldur en að ræða raforkumál út frá öllu sem þeirri umræðu tengist. Síðan er kannski rétt — og varðandi fjármálaumræðuna, það er gríðarlega mikilvægt að öll þessi gögn og greiningar séu til staðar vegna þeirra breytinga sem voru gerðar á því hvernig við ræðum fjárlög ríkisins og fjármál ríkisins fyrir tíu árum, eins og ég kom inn á áðan. Fjárlagaumræðan er gríðarlega mikilvægt plagg vegna þess að lyktin er komið svo mikið inn í umræðu um fjármálaáætlun í stað fjárlaganna að hausti. Síðan vil ég að lokum segja að ég veit ekki betur en að hv. þingmenn Flokks fólksins hafa staðið sig gríðarlega vel allt síðasta kjörtímabil og talað mikið hér í pontu Alþingis, eins og hv. þm. Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir hefur verið að gera á síðustu vikum, talað hérna mest allra þingmanna. Þannig að þetta er bara aðdáunarvert, (Forseti hringir.) að fólk taki þátt í lýðræðislegri umræðu hér í þingsal.