starfstengdir eftirlaunasjóðir.
Forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til laga um starfstengda eftirlaunasjóði. Frumvarpið felur í sér innleiðingu í íslenskan rétt á tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2016/2341 frá 14. desember 2016, um starfsemi og eftirlit með stofnunum sem sjá um starfstengdan lífeyri. Um er að ræða endurútgáfu á eldri tilskipun um sama efni sem innleidd var með lögum um starfstengda eftirlaunasjóði, nr. 78/2007.
Tilskipunin felur í sér töluverðar viðbætur við eldri tilskipun um starfstengdan eftirlaunasparnað og þótti því rétt að taka lögin til heildarendurskoðunar. Með frumvarpinu er lagt til að ný heildarlög um starfstengda eftirlaunasjóði leysi af hólmi lög nr. 78/2007.
Meginefni tilskipunarinnar snýr að því að styrkja regluverk Evrópusambandsins fyrir starfsemi starfstengdra eftirlaunasjóða. Tilskipunin er liður í frekari viðleitni Evrópusambandsins til að þróa innri markað á Evrópska efnahagssvæðinu og gera fjármálastofnunum kleift að starfa í öðrum aðildarríkjum og tryggja víðtæka vernd fyrir neytendur. Lögð er áhersla á betri vernd fyrir lífeyrisþega, auka gagnsæi og herða kröfur um góða stjórnarhætti með sérstakri áherslu á áhættustýringu og varnir gegn hagsmunaárekstrum.
Lögð er áhersla á að sjóðirnir taki mið af sjálfbærnimarkmiðum svo þeir geti tekið tillit til umhverfis- og félagslegra þátta í fjárfestingarákvörðunum sínum og skuli skýra frá því hafi það verið gert.
Í tilskipuninni eru ákvæði sem auðvelda starfsemi sjóðanna yfir landamæri, eykur eftirlit með þeim og að þeir tryggi að sjóðfélagar njóti lífeyrisréttinda sinna óháð búsetu innan Evrópska efnahagssvæðisins.
Forseti. Eins og í eldri tilskipun er áfram gengið út frá því að skerða ekki forræði einstakra ríkja á fyrirkomulagi lífeyrismála. Stuðlað er að lágmarkssamræmingu á lífeyrismarkaði innan Evrópska efnahagssvæðisins. Misjafnt er hve stór hluti lífeyrissparnaðar fellur undir gildissvið tilskipunarinnar. Tilskipunin hefur ekki bein áhrif á almenna lífeyriskerfið á Íslandi, heldur eingöngu starfstengda eftirlaunasjóði í skilningi tilskipunarinnar. Frumvarpið tekur þess vegna hvorki til skyldubundins framlags til lífeyrissjóða né skylduaðildar að lífeyrissjóðum.
Einstaklingsbundinn viðbótarlífeyrissparnaður, samkvæmt lögum um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða fellur ekki heldur undir tilskipunina þar sem hann er byggður á ákvörðun einstaklings en er ekki starfstengdur í skilningi tilskipunarinnar.
Líkt og í gildandi lögum er því litið svo á að starfstengdir eftirlaunasjóðir í skilningi tilskipunarinnar séu sjálfstæðar einingar til hliðar við grunnstoðir íslenska lífeyriskerfisins og lagarammi þeirra afmarkaður út frá því án þess að gengið sé lengra við innleiðingu tilskipunarinnar en efnið gefur til kynna.
Forseti. Að lokum ber þess að geta að starfstengdir eftirlaunasjóðir hafa ekki verið starfræktir á Íslandi og Fjármálaeftirlitið mun, líkt og gildandi lög kveða á um, fara með eftirlit með þeim.
Að þessu sögðu legg ég til að frumvarpinu verði vísað til efnahags- og viðskiptanefndar að lokinni þessari umræðu.