156. löggjafarþing — 26. fundur,  4. apr. 2025.

starfstengdir eftirlaunasjóðir.

252. mál
[11:38]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ef ég skil þetta frumvarp rétt þá geri ég nú ráð fyrir að þetta mál hafi kannski ekki mikla praktíska þýðingu í okkar lífeyrissjóðakerfisumhverfi, eins og rakið er í grófum dráttum í athugasemdum með frumvarpinu. Það vekur hins vegar athygli mína að í kaflanum um samráð, þar sem rakið er það samráð sem haft var þegar frumvarpið fór í samráðsgáttina — það bárust tvær umsagnir, önnur frá Samtökum atvinnulífsins — þá vekur það athygli mína að í frumvarpsdrögunum hafði verið gert ráð fyrir að eftirlaunasjóðir eins og þessi skuli horfa til sjónarmiða um umhverfisþætti og félagslega þætti. Nú er þetta bein innleiðing á reglugerð eða tilskipun Evrópusambandsins, IORT-tilskipunarinnar, og ef marka má þessa umsögn þá hefur verið gengið lengra við samningu frumvarpsdraganna heldur en tilskipunin sjálf kvað á um. Benda samtökin á að það sé ekki gerð krafa um að starfstengdir eftirlaunasjóðir horfi til slíkra sjónarmiða, það sé bara hreinlega ekki gerð krafa um það. En þeim sé það hins vegar heimilt og þurfi þá að tilgreina hvort þeir taki tillit til slíkra sjónarmiða um áhættustýringu og fjárfestingarákvarðana vegna þess að það getur auðvitað dregið úr ávöxtun slíkra sjóða horfi menn til slíkra sjónarmiða.

Mig langar að spyrja hæstv. fjármálaráðherra hvort hann hafi veitt því athygli og spurst fyrir um það í sínu ráðuneyti hvernig það megi vera að samningsdrögin sem send eru í samráðsgátt hafi tekið þessari, eins og menn hafa verið að kalla hér gullhúðun með þessum hætti. Ég vek athygli á því og þakka fyrir það að eftir að samráð var haft þá var dregið úr þessu og frumvarpinu breytt. En mér finnst þetta athyglisvert í ljósi þeirrar miklu umræðu sem hefur verið hérna um innleiðingu á gerðum sem hafa sýknt og heilagt verið gullhúðaðar.