156. löggjafarþing — 26. fundur,  4. apr. 2025.

starfstengdir eftirlaunasjóðir.

252. mál
[11:40]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Daði Már Kristófersson) (V) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hv. þm. Sigríði Andersen fyrir hennar ágætu spurningu. Ég vek athygli á því sem kom fram í niðurlagi hennar að í kjölfar þessarar ábendingar var frumvarpinu breytt. Það er mjög mikilvægt að við vinnum gegn gullhúðun í þeim skilningi að viðbætur séu gerðar við reglur sem koma sem innleiðingarreglur þannig að þær verði ekki meira íþyngjandi fyrir innlenda aðila en nauðsynlegt er.