starfstengdir eftirlaunasjóðir.
Virðulegur forseti. Í framhaldi af þessu ágæta andsvari hæstv. fjármálaráðherra langar mig að spyrja hann hvort hann muni eftirleiðis veita því sérstaka athygli, kanna það sérstaklega áður en frumvörp fara jafnvel í samráðsgáttina og svo sannarlega áður en þau koma hingað í þingið, hvort um hafi verið að ræða gullhúðun. Vegna þess að í þessu tilfelli finnst mér hafa verið mjög undarlega breytt frá markmiðum tilskipunarinnar sem hefði orðið mjög til ama.
Í framhaldi af þessu væri áhugavert að eiga orðastað við hæstv. fjármálaráðherra, þótt það gefist kannski ekki tækifæri til þess í löngu máli hér, um fjárfestingarstefnu lífeyrissjóða, og það sem undir hann heyrir helst er Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins, LSR. En lífeyrissjóðir hafa hér undanfarin ár markvisst sjálfstætt verið að taka upp einhverjar fjárfestingarstefnur þar sem menn hafa verið að horfa einmitt mikið til sjónarmiða um umhverfisþætti og félagslega þætti og alls konar sjónarmiða, hafa tekið upp hjá sjálfum sér að banna fjárfestingar í ýmsum greinum, ýmsum iðnaði, hjá vopnaframleiðendum, einhverjum greinum sem hafa talist brúnar greinar, sem eru t.d. bara orkuvinnsla og annað. Hefur hæstv. fjármálaráðherra skoðanir á þessu og telur hann ekki tilefni til þess núna, sérstaklega í ljósi þess að íslensk stjórnvöld hafa nú farið á vopnvæðingarvagninn sem aldrei fyrr, a.m.k. í tíð síðustu ríkisstjórnar Vinstri grænna, og hvatt til þess að kaupa vopn fyrir stríðsátök víða um heim? Telur hæstv. fjármálaráðherra ekki tilefni til þess að beina því a.m.k. til þess lífeyrissjóðs sem undir hann heyrir eða hann hefur aðkomu að, Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins, að menn hugi aðeins að þessum fjárfestingarstefnum og hafi m.a. í huga þessa tilskipun frá Evrópusambandinu, IORP, sem nákvæmlega skyldar ekki til að horfa til þessara sjónarmiða heldur þvert á móti, eða gerir kröfu um það að menn greini skilmerkilega frá því ef menn ætla að horfa til slíkra sjónarmiða vegna þess að þessi sjónarmið draga úr möguleikum á ávöxtun til framtíðar?