156. löggjafarþing — 26. fundur,  4. apr. 2025.

starfstengdir eftirlaunasjóðir.

252. mál
[11:43]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Daði Már Kristófersson) (V) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hv. þm. Sigríði Andersen fyrir hennar spurningu. Hún gerir sér væntanlega grein fyrir því að ekki gefst tími til ítarlegrar umræðu um fjárfestingarstefnu lífeyrissjóðanna í andsvörum hér en ég hvet hana eindregið til þess að óska eftir sérstakri umræðu um þetta þar sem ég myndi glaður mæta til að ræða þessi mál, enda eru þau gríðarlega mikilvæg. Varðandi gullhúðun eða sem sagt séríslenskar viðbætur við innleiðingarlög og -gerðir þá er það sérstakt áhugamál hjá mér að halda þeim frá og í algeru lágmarki.