156. löggjafarþing — 26. fundur,  4. apr. 2025.

starfstengdir eftirlaunasjóðir.

252. mál
[11:46]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég bið hæstv. ráðherra afsökunar á því að ég missti af sirka tveimur mínútum af framsöguræðu hæstv. ráðherra og þetta hefur væntanlega komið fram á þeim tíma. En ég ætla hér í seinna andsvari — hæstv. ráðherra kom inn á það í framsöguræðu sinni að þetta hefði ekki bein áhrif á lífeyriskerfið eins og það er byggt upp hér heima. Má ekki segja að það hafi verið réttur efnislegur skilningur á orðum hæstv. ráðherra? En það segir engu að síður hér í frumvarpinu þar sem umsögn Samtaka atvinnulífsins er lýst, með leyfi forseta:

„… þrátt fyrir að hér á landi hafi ekki reynt á löggjöf um starfstengda eftirlaunasjóði hafi IORP-tilskipanirnar þjónað ákveðnu hlutverki sem viðmiðunarregluverk sem gjarnan sé horft til við mótun og umræðu um íslenska lífeyrissjóði.“

Ég vil nefna þetta hér í því samhengi að regluverk sem þetta, þó að ekki hafi verið með beinum hætti stunduð starfsemi á grundvelli þess, hefur auðvitað áhrif á þróun íslensks réttar hvað þetta umhverfi varðar. Maður heyrir af ýmsum atriðum sem uppsafnað hafa verið íþyngjandi fyrir íslenska lífeyrissjóði þar sem gullhúðun á fyrri stigum hefur orðið raunin. Í því samhengi, sér hæstv. ráðherra mögulega fyrir sér að fara með einhverjum kerfisbundnum hætti í það að vinda ofan af slíkum reglum sem hafa laumast inn í regluverkið hér heima í gegnum árin? Það er alveg ljóst að hefði til að mynda Samtökum atvinnulífsins yfirsést þetta tiltekna atriði í þessum frumvarpsdrögum í samráðsgátt þá væri þetta væntanlega í frumvarpinu eins og það liggur fyrir núna. Við vitum hvernig þetta á það til að atvikast á færibandinu. Mig langar að spyrja út í afstöðu hæstv. ráðherra til þess að fara með kerfisbundnum hætti í gegnum það að vinda ofan af því sem hefur gerst á fyrri stigum í þessum efnum.