starfstengdir eftirlaunasjóðir.
Frú forseti. Ég þakka hæstv. fjármálaráðherra framsöguna. Hér er innleiðingarmál sem ber það ekki með sér að það hafi mikil áhrif á það sem við bardúsum hér heima dagana langa. Það eru samt nokkur atriði sem er ástæða til að nefna í þessu samhengi sem kannski teikna upp þá mynd sem sést svo oft, að afleidd áhrif frumvarpa eru kannski lítið athuguð þegar þau fara hér í gegnum þingið.
Fyrst vil ég nefna það sem kom aðeins fram í andsvörum hér áðan, bæði hjá mér og hv. þm. Sigríði Andersen, og varðar það með hvaða hætti málið kom inn í samráðsgátt stjórnvalda. Þar var ákvæði þar sem gengið er lengra, þannig að töluverðu munar, um tiltekið atriði er varðar fjárfestingarstefnu lífeyrissjóða. Þetta er auðvitað þessi dæmigerða gullhúðun sem er svo mikið rædd nú um stundir sem þarna er með þeim hætti að þegar frumvarpið er lagt inn í samráðsgátt er tilgreint í 2. tölulið 11. gr., um fjárfestingarreglur, með leyfi forseta:
„Við ákvörðun um fjárfestingu skal taka tillit til hugsanlegra langtímaáhrifa hennar á umhverfis- og félagslega þætti auk stjórnarhátta.“
Skal taka tillit til. Samtök atvinnulífsins bentu í umsögn sinni á að þarna væri gengið harðar fram en gerðin kallaði eftir og leiddi út í raun. Við því var brugðist og því ber að fagna og nú er orðalagið þannig, með leyfi forseta:
Við ákvörðun um fjárfestingu er sjóði heimilt að taka tillit til hugsanlegra langtímaáhrifa …“ o.s.frv.
Þetta er gott og ég fagna þeim orðum sem hæstv. fjármálaráðherra lét falla í andsvari um að hér væri enga frekari gullhúðun að finna og hann legðist með mikilli festu gegn því í sínum störfum í ráðuneytinu að slíkt kæmist í gegn. Ég vil í því samhengi bara nefna að sú lína hæstv. ráðherra hefur — ég er ekki með dagsetninguna þegar þetta kom inn í samráðsgáttina — alveg örugglega verið lögð áður en þetta frumvarp er lagt í samráðsgátt og samt gerist þetta. Það er þessi tilhneiging að koma — bara eitt lítið orð, „skal“ taka tillit til eða „heimilt“ að taka tillit til, gjörbreytir áhrifum frumvarpsins. Við þurfum að hafa það í huga í allri þeirri vinnu sem við stundum hér að þessi tilhneiging leynist víða.
Í þessu samhengi skiptir máli að það er enginn sem í raun starfar með beinum hætti undir þessu regluverki þótt það hafi verið innleitt árið 2007, ef ég man rétt. En eins og segir í greinargerð frumvarpsins þar sem fjallað er um umsögn Samtaka atvinnulífsins, með leyfi forseta:
„Í umsögn Samtaka atvinnulífsins er vakin athygli á að þrátt fyrir að hér á landi hafi ekki reynt á löggjöf um starfstengda eftirlaunasjóði hafi IORP-tilskipanirnar þjónað ákveðnu hlutverki sem viðmiðunarregluverk sem gjarnan sé horft til við mótun og umræðu um íslenska lífeyrissjóði.“
Þarna væri þetta atriði orðið stóratriði til framtíðar og hefði áhrif á fjárfestingarstefnu lífeyrissjóða sem hefur síðan aftur áhrif á ávöxtun lífeyris landsmanna allra. Bara til gamans má nefna hér að með vísan í orðaskipti hæstv. fjármálaráðherra og hv. þm. Sigríðar Á. Andersen hér áðan þá hefur Sigríður Á. Andersen óskað eftir sérstakri umræðu um fjárfestingarstefnu lífeyrissjóða sem ég veit að hæstv. fjármálaráðherra mun fagna mjög að taka þátt í hér þegar tími vinnst til á vorþinginu.
Síðan segir hér áfram, í tengslum við umsögn Samtaka atvinnulífsins, með leyfi forseta:
„Aftur á móti sé í frumvarpinu að finna kröfu um að starfstengdir eftirlaunasjóðir skuli horfa til sjónarmiða um umhverfisþætti og félagslega þætti auk stjórnarhátta og að það eigi jafnt við um stjórnkerfi sjóðsins, ákvarðanir um fjárfestingu sem og áhættustýringu.“
Þetta er atriðið sem var sem sagt undið ofan af í kjölfar athugasemda Samtaka atvinnulífsins. Hér segir áfram, með leyfi forseta:
„Samtökin telja að gengið sé lengra við innleiðingu þar sem í tilskipun Evrópusambandsins sé ekki gerð krafa um að starfstengdir eftirlaunasjóðir horfi til slíkra sjónarmiða.“
Ekki gerð krafa. Þetta minnir mig á það að hér höfðu nokkrir samgönguráðherrar í röð haldið því fram, réttilega, að fenginni ráðgjöf, að eigin mati, fyrir nokkrum kjörtímabilum síðan að það einfaldlega yrði að tvöfalda Hvalfjarðargöngin, Evrópuregluverk uppálegði mönnum þær skyldur á grundvelli þróunar í öryggisreglum og þar fram eftir götunum. Svona tjáðu sig, að ég held, þrír samgönguráðherrar í röð, a.m.k. tveir, engin ill meining þar á bak við. Heyrðu, svo settist bara einhver einhverfingur niður og las regluverkið sem þessi ráðgjöf var grundvölluð á og þá bara stóð þetta ekkert í því, alls ekki.
Ég nefni þetta bara í því ljósi að það eru bæði svona hlutir sem — afsakið orðalagið, hæstv. forseti — „slæda“ í gegn, er laumað í gegn, það er önnur meining, en gullhúðunin, þetta gerist, allir vilja vel, telja málið betra með þessu orðalagi en ekki hinu og þar fram eftir götunum. Þetta getur bæði falið í sér verulegan beinan kostnað, þetta getur bjagað ákvarðanatöku og gert hana grundvallaða á beinlínis röngum forsendum og síðan eins og hér, eins og málið lá upphaflega í samráðsgátt, átt við fjárfestingarreglur lífeyrissjóða. Bara í ljósi þess að þetta regluverk er notað til hliðsjónar þá hefði án nokkurs vafa verið vísað til þess síðar. Við verðum að halda vökunni hvað þetta varðar og þess vegna ætla ég að leyfa mér að gagnrýna enn einu sinni hér í þessum ræðustól hversu litla athygli innleiðingarmálin fá oft. Iðulega er bara sagt: Heyrðu, þetta er bara hreint innleiðingarmál, og menn setja einhvern veginn kíkinn fyrir blinda augað og það er alls konar drasl sem fylgir með, því miður. Við þurfum að fara kerfisbundið í þá vinnu að vinda ofan af slíkum óþarfa.
Svo ég haldi áfram þá segir hér í umfjöllun um umsögn Samtaka atvinnulífsins, þar sem er nýbúið að fjalla um að ekki sé gerð krafa um að sjóðir horfi til þessara þátta við fjárfestingarákvarðanir sínar, með leyfi forseta:
„Þeim sé það heimilt og þurfi að tilgreina hvort þeir horfi til slíkra sjónarmiða við áhættustýringu og fjárfestingarákvarðanir.“ — Heimilt, það er grundvallarmunur á. — „Með vísan til þess að IORP II hafi þjónað sem viðmiðunarregluverk fyrir umræðu um umgjörð íslenska lífeyriskerfisins telja samtökin mikilvægt að ekki séu lagðar þyngri kröfur á starfstengda eftirlaunasjóði en almennt gildi í Evrópu.“ — Þetta er auðvitað kjarnasjónarmið sem ég vildi leggja áherslu á að halda til haga.
Förum aðeins í áhrifamatið. Ef ég skil þetta rétt þá er enginn að starfa undir þessu regluverki en það eru afleiddu áhrifin sem skipta máli. Ef ég skil það rétt þá varðar þetta kannski helst þá sem eru að færa réttindi milli landa, alla vega að hluta til, og það ber að hafa í huga. Það er beinlínis tilgreint hér í áhrifamatinu að beinu áhrifin séu hverfandi en afleiddu áhrifin, eins og þau geta teiknast upp hérna, eru auðvitað miklum mun meiri í ljósi þess að þetta er notað sem skapalón fyrir það sem á eftir kemur.
Það var hér eitt atriði til sem ég ætlaði að nefna. Í öðrum kafla greinargerðar um tilefni og nauðsyn lagasetningar þá er hér, með leyfi forseta:
„Með frumvarpinu er IORP II innleidd í íslenskan rétt. Þar er að finna sambærileg eða óbreytt ákvæði og eru nú þegar í gildandi rétti sem og ný ákvæði sem miða m.a. að því að efla lágmarksvernd fyrir sjóðfélaga og eftirlaunaþega …“
Þetta hljómar mjög vel og er bara vonandi hið besta mál en ég vil beina því til hv. efnahags- og viðskiptanefndar að glöggva sig á því hvort þessar breytingar hafi einhver áhrif á réttindi, skyldur og kannski sérstaklega kostnað því það er þannig með svo margt af því góða í lífinu að það felur í sér einhvern kostnað þó að hann sé ekki augljós öllum. Við sjáum þetta hér og hvar í umhverfi tryggingafélaga. Þar er ýmis viðbótarkostnaður sem m.a. ýtir undir það hversu iðgjöld eru talin há hér á landi samanborið við víða annars staðar, þannig að ég vil beina því til hv. efnahags- og viðskiptanefndar að skoða sérstaklega hvort einhver kostnaðarleg afleidd áhrif séu af þeim sérstöku nýju ákvæðum sem hérna eru tilgreind. Þó að þau eigi ekki við með beinum hætti við neina sjóðfélaga sem undir þetta regluverk heyra þá bara í ljósi hlutverks regluverksins sem skapalóns þá eru líkur til þess að það velti yfir á markaðinn, regluverkið í heild sinni, hið virka, þegar fram líða stundir.
Ég ætla að láta þetta duga við þessa 1. umræðu, virðulegur forseti, og óska hv. efnahags- og viðskiptanefnd velfarnaðar í meðhöndlun málsins.