156. löggjafarþing — 26. fundur,  4. apr. 2025.

starfstengdir eftirlaunasjóðir.

252. mál
[12:10]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S):

Virðulegi forseti. Við fjöllum hér um frumvarp til laga um starfstengda eftirlaunasjóði. Við fyrstu yfirferð sýndist manni maður ekki þurfa að hafa miklar áhyggjur af þessu þar sem svona sjóðir eru nú ekki starfandi hér á landi. Við höfum okkar öfluga lífeyrissjóðakerfi og svo viðbótarlífeyrissparnað og sérstaka séreign þannig að þessum málum er nú þokkalega fyrir okkur komið. En þegar betur er að gáð þá getur þessi löggjöf einmitt haft áhrif á þróun þeirrar löggjafar og þá er nú tilefni til að opna augun aðeins betur og fara yfir það að ef við setjum löggjöf sem ekki hefur verið starfað eftir en hefur óbein áhrif þá er mikilvægt að hún sé vel úr garði gerð. Því ákvað ég að koma hér og nefna þetta og nokkur atriði sem ég mun þá ásamt hv. samþingmönnum mínum í hv. efnahags- og viðskiptanefnd taka til skoðunar þegar málið kemur þangað til umfjöllunar og hvet einmitt aðra hagaðila til að skoða vel málið og veita þá umsögn sjái þeir eitthvað þarna sem sé athugunarinnar virði. Þá er það einmitt gullhúðunin sem er fyrst og fremst mikilvægt að fylgjast með, hvort það sé ekki örugglega verið að taka þetta inn með lágmarksinnleiðingu.

En þó að það starfi enginn undir þessu í dag þá held ég að sé líka mikilvægt að spyrja svona spurninga: Er möguleiki að einhver vilji gera það, mun það vera betra fyrir íslenska launþega að það komi annaðhvort íslenskur eftirlaunasjóður til hliðar, valkvæður — þetta snýst um valkvæða eftirlaunasjóði — eða erlendur sjóður? Þegar við erum með svona gríðarlega háar inngreiðslur í lífeyriskerfið, alveg 15,5% í skyldusparnaðinn og sérstöku séreignina og svo mjög margir með viðbótarlífeyrissparnað, þá kannski sér maður það ekki alveg fyrir, en ég held að það sé samt rétt að maður spyrji að því í hvaða tilfellum það gæti verið, eða eru kannski bara engar líkur á því að það verði? Og ef það yrði þá yrðu það alltaf svo fáir sem myndu nýta sér það með svona háar lífeyrisgreiðslur eins og við höfum að það er ekki víst.

Það kemur skýrt fram að við erum áfram með sjálfstjórnina á hvernig við högum okkar lífeyriskerfi og það er mjög gott að sjálfstæði þjóðarinnar sé tryggt áfram í því og það er tekið sérstaklega fram hér enda erum við Íslendingar, má eiginlega segja, brautryðjendur í lífeyrissjóðakerfinu í Evrópu og mörg lönd sem hafa búið við gegnumstreymiskerfi hafa horft til okkar um hvernig við höfum byggt okkar kerfi upp og er kerfið mjög mikilvægt. En það verður að segjast eins og er að það fylgja því svo sem alveg vaxtarverkir líka og við þurfum að vera opin fyrir því hvernig okkar lífeyrissjóðakerfi virkar og hvernig það er að haga sinni fjárfestingarstefnu og hvernig við ávöxtum sjóði lífeyrissjóðanna. Það er nefnilega gríðarlega mikilvægt af því að fjárfestingarstefna lífeyrissjóðanna og hvar þeir fjárfesta og hvernig þeir beita þessum miklu sjóðum getur haft gríðarleg áhrif á þróun íslensks samfélags og sérstaklega íslensks efnahagslífs, samkeppni innan lands og annað slíkt.

Því er það svolítið mikilvægt sem hv. þingmenn Sigríður Á. Andersen og Bergþór Ólason komu inn á áðan, hvernig er talað einmitt um fjárfestingarstefnuna í þessu og að það þurfi að horfa til sjónarmiða um umhverfisþætti og félagslega þætti auk stjórnarhátta og að það eigi jafnt við um stjórnkerfi sjóðsins, ákvarðanir um fjárfestingu sem og áhættustýringu. Af því að þar sem er talað um þetta í þessu máli þá er þetta einmitt einn þátturinn sem við þurfum að horfa mikið til. Frá því að þessi reglugerð, sem er búin að taka mörg ár örugglega í undirbúningi og þangað til hún ratar hingað inn í sali Alþingis á Íslandi — þá hefur nú bara mjög margt breyst í heiminum, frá því að þessar áherslur voru settar fram, þessi sjónarmið sem þeir eiga að horfa til. Þetta eru svo sem góð og gegn mál en það skiptir miklu máli hversu rík skylda er til að horfa á þessa þætti og hvort það séu komnir einhverjir aðrir þættir inn þegar heimsmyndin breytist dag frá degi og við þurfum að fara þá varlega í þessu og ég held að þetta sé eitt af lykilatriðunum sem við þurfum að horfa til í nefndinni og samspil á milli lífeyrissjóðakerfisins og þessarar löggjafar þó að það sé aðskilið og við eigum að halda okkar forræði ef þetta er notað sem leiðarljós að einhverju leyti.

Svo einmitt það sem ég kom aðeins inn á áðan er að reyna að svara spurningunni og vonandi getum við þá upplýst um það hér við 2. umræðu eftir að hafa farið yfir málið í hv. efnahags- og viðskiptanefnd einmitt: Er það gott eða slæmt að það séu engir svona sjóðir starfandi á Íslandi? Er það eitthvað til þess vinnandi að þeir komi? Eru einhverjir sem kynnu að vilja nýta sér það eða hefðu hag af því eða gagn eða nauðsyn? Og svo hvernig samspilið er þá óbeint á milli þróunar íslenska lífeyrissjóðakerfisins og þessarar lagasetningar varðandi þessa sjóði og annað slíkt.

Ég hlakka bara til þeirrar vinnu í hv. efnahags- og viðskiptanefnd og vona að eftir þá vinnu verði þessi atriði sem höfum farið hér yfir orðin skýr og að við höfum gengið fyllilega úr skugga um að hér sé ekki um neina gullhúðun að ræða og getum jafnvel komið með einhverjar ábendingar til hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra ef það er einhvers staðar að finna gullhúðun inni í núverandi kerfum sem þetta hefur haft áhrif á hingað til og getum þá vísað því til hans að bregðast við eins og hann tók svo vel undir hér og fagna ég þeirri yfirlýsingu hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra um það hvernig hann ætlar að vinna gegn gullhúðun og vanda sig við að afnema hana.