breyting á ýmsum lögum um skatta, tolla og gjöld.
Forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi um breytingu á ýmsum lögum um skatta, tolla og gjöld. Lagðar eru til breytingar á 27. gr. a tollalaga. Þar er kveðið á um skyldu innflytjenda, útflytjenda, tollmiðlara, ferðamanna og farmanna að gera tollyfirvöldum grein fyrir fjármunum sem fluttir eru til landsins frá útlöndum og frá landinu til útlanda sem nemur 10.000 evrum eða meira. Lagt er til að tilkynningarskyldan verði víkkuð út og látin ná til fjármuna sem fluttir eru til og frá landinu með póstsendingum. Til að hnykkja enn frekar á tilkynningarskyldunni er líka lagt til að nýju ákvæði verið bætt við lög um póstþjónustu þess efnis að póstrekanda sé óheimilt að taka á móti sendingu til eða frá landinu sem inniheldur fjármuni í reiðufé eða handhafabréfum, þ.m.t. ferðatékkum, að fjárhæð sem nemur 10.000 evrum eða meira nema áður hafi verið sérstaklega tilkynnt um flutninginn til tollyfirvalda.
Lagt er til að tollyfirvöldum verði heimilt að beita viðurlögum vegna brota gegn tilkynningarskyldunni ef brot eru framin af ásetningi eða gáleysi. Samkvæmt gildandi tollalögum er beiting viðurlaga vegna brota á tilkynningarskyldunni í 27. gr. a í tollalögum hins vegar bundin við ásetning eða stórkostlegt gáleysi. Reynsla tollyfirvalda hefur sýnt að ómögulegt er að sýna fram á slíkt í þeim tilvikum þegar umrædd tilkynningarskylda er ekki virt, sem þýðir að gildandi viðurlagaheimild er svo gott sem marklaus.
Forseti. Lagðar eru til breytingar á viðurlagaramma vegna brota á tilkynningarskyldunni í 27. gr. a tollalaga. Lagt er til að kveðið verði á um í tollalögum að sektir skulu nema 20% af verðmæti þeirra fjármuna sem ekki var tilkynnt um. Sektarfjárhæðir verða þá byggðar á hlutlægum og gagnsæjum mælikvarða auk þess sem tollyfirvöldum verður gert auðveldara fyrir að beita sektarákvæðinu og ljúka málum á staðnum.
Með þessum breytingum er verið að samræma löggjöf hér á landi við tilmæli FATF, alþjóðlegs fjármálaaðgerðarhóps ríkja um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka, en Ísland er aðili að FATF. Næsta úttekt FATF á því hvernig Íslandi hefur tekist að innleiða tilmæli FATF og efla varnir sínar gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka fer fram á næsta ári og þess vegna aðkallandi að gera þessar breytingar.
Forseti. Lagt er til að nýju ákvæði verði bætt við tollalögin sem heimili tollyfirvöldum að leita í innrituðum farangri farþega og áhafnar að viðkomandi fjarstöddum. Ef slík leit er gerð er tollyfirvöldum skylt að tilkynna um það til viðkomandi. Í dag er skoðun tollyfirvalda á farangri farþega og áhafnar í öllum tilvikum bundin við að hlutaðeigandi sé gefinn kostur á að vera viðstaddur leitina. Slíkt getur verið vandkvæðum bundið vegna skipulags flughafna þegar um innritaðan farangur er að ræða og tíminn til að gera leit ansi knappur.
Tilgangurinn með þessari breytingu er að styrkja eftirlit og varnir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka. Samkvæmt áhættumati ríkislögreglustjóra er áhættan af flutningi fjármuna, þ.m.t. reiðufjár, til og frá Íslandi metin mikil eða í hæsta áhættuflokki þar sem tollgæslu skortir viðunandi lagaheimild til að gera leit í innrituðum farangri. Þessar breytingar eru einnig gerðar vegna ábendinga frá FATF.
Forseti. Í frumvarpinu eru lagðar til breytingar á 172. gr. tollalaga. Þar er nú kveðið á um sá skuli sæta sektum sem af ásetningi eða gáleysi veitir rangar eða villandi upplýsingar um tegund, magn eða verðmæti vöru eða vanrækir að leggja fram tilskilin gögn samkvæmt lögunum vegna innflutnings vöru. Sú háttsemi sem lýst er í 172. gr. tollalaga getur leitt til þess að ekki séu greidd rétt aðflutningsgjöld af vöru. Lögaðili sem flytur inn vöru getur hagnast um háar fjárhæðir ef rangar eða villandi upplýsingar eru til að mynda veittar um tegund, magn eða verðmæti vöru. Óeðlilegt er, líkt og leiðir af gildandi ákvæði 172. gr., að eingöngu einstaklingi, t.a.m. starfsmanni lögaðila, sem getur verið undir þrýstingi frá vinnuveitanda sínum um að drýgja brotið, sé refsað vegna brots en lögaðilinn sem hagnast á brotinu hljóti enga refsingu. Hér er lagt til að gera megi lögaðila sekt þegar um er að ræða brot gegn ákvæðinu óháð því hvort brotið verði rakið til saknæms verknaðar starfsmanns lögaðilans, enda sé brotið drýgt til hagsbóta fyrir lögaðilann eða hann notið hagnaðar af brotinu. Með slíku ákvæði verða tryggð fullnægjandi varnaðaráhrif gagnvart lögaðilum vegna þess háttar brota.
Forseti. Í frumvarpinu eru lagðar til breytingar á ákvæðum laga um tekjuskatt, lögum um virðisaukaskatt og tollalögum í kjölfar tveggja álita umboðsmanns Alþingis. Markmiðið er að tryggja aðilum málskotsrétt vegna synjunar ríkisskattstjóra á annars vegar beiðni um endurupptöku á grundvelli stjórnsýslulaga og hins vegar breytingu á fyrri ákvörðun sinni. Lagt er til að ótvírætt verði kveðið á um í lögunum að slíkum ákvörðunum megi skjóta til yfirskattanefndar í stað ráðuneytis. Jafnframt er lagt til að sambærilegri heimild og er að finna í lögum um tekjuskatt verði bætt við ákvæði laga um virðisaukaskatt og tollalög sem heimilar endurupptöku, sé þess kostur, í tilefni af breytingum á skattframkvæmd í kjölfar úrskurðar yfirskattanefndar, endanlegs dóms eða afturvirkrar breytingar á lögum.
Samkvæmt ákvæðunum í lögum um tekjuskatt og lögum um virðisaukaskatt er heimilt að taka til greina beiðni skattaðila um breytingu á ákvörðun um skattstofn, skattálagningu eða virðisaukaskatt, allt að sex tekjuár aftur í tímann enda liggi verulegir hagsmunir að baki slíkri beiðni. Frá þessum tímamörkum má víkja ef sérstakar ástæður eru fyrir hendi en hér er lagt til að fallið verði frá þessari matskenndu heimild og sambærilegt ákvæði tekið upp í tollalögin.
Forseti. Lagðar eru til breytingar á lögum um jöfnun kostnaðar við dreifingu raforku, nr. 98/2004, þess efnis að jöfnunargjald vegna dreifingar á forgangsorku verði hækkað úr 0,41 kr. á hverja kílóvattstund í 0,76 kr. og að jöfnunargjald vegna skerðanlegs flutnings raforku verði hækkað úr 0,13 kr. á hverja kílóvattstund í 0,25 kr.
Fyrir liggur að tekjur af jöfnunargjaldi ásamt 1.100 millj. kr. framlagi ríkissjóðs samkvæmt fjárlögum fyrir árið 2025 duga einungis fyrir um 70% jöfnunar kostnaðar. Til þess að ná fullri jöfnun á seinni hluta þessa árs 2025, og þar með tryggja almennum notendum raforku í dreifbýli fulla niðurgreiðslu er nauðsynlegt að hækka jöfnunargjaldið.
Forseti. Frumvarpið gerir ráð fyrir að ákvæði til bráðabirgða í lögum um tekjuskatt, sem fjallar um skattfrelsi styrkja sem einstaklingar utan rekstrar hljóta til kaupa á hreinorkubifreiðum, verði framlengt til loka árs 2027.
Forseti. Að lokum eru í frumvarpinu lagðar til breytingar á nokkrum ákvæðum í lögum um virðisaukaskatt og lögum um umhverfis- og auðlindaskatta vegna breytinga á tollskrá. Auk þess er lagt til að fella brott nokkur ákvæði í tollalögum til samræmis við breytingar sem þegar hafa orðið á búvörulögum, nr. 99/1993.
Verði frumvarpið að lögum mun hækkun jöfnunargjalds þýða að heildartekjur af jöfnunargjaldinu verða um 2.200 millj. kr. árið 2025 í stað um 1.550 millj. kr. Þar sem virðisaukaskattur leggst á jöfnunargjaldið mun hækkun þess einnig hafa jákvæð hliðaráhrif á tekjur ríkissjóðs, sem nemur 156 millj. kr. í auknar tekjur af virðisaukaskatti vegna ársins 2025.
Verði frumvarpið að lögum má ætla að tekjutap ríkisins vegna framlengingar á skattfrelsi styrkja til einstaklinga vegna kaupa á hreinorkubifreiðum frá tekjuskatti og útsvari verði 500 millj. kr. árið 2025 en 300 millj. kr. árlega til 2027. Hliðstætt tekjutap sveitarfélaga má áætla 300 millj. kr. árið 2025 en 200 millj. kr. árlega til 2027.
Forseti. Frumvarpinu fylgir ítarleg greinargerð þar sem fjallað nánar um mat á áhrifum fyrir ríkissjóð á útgjalda- og tekjuhlið. Sama gildir um annað áhrifamat og vísast til hennar um nánari upplýsingar.
Að þessu sögðu legg ég til að frumvarpinu verði vísað til hv. efnahags- og viðskiptanefndar að lokinni þessari umræðu.