156. löggjafarþing — 26. fundur, 4. apr. 2025.
breyting á ýmsum lögum um skatta, tolla og gjöld.
260. mál
Forseti. Ég þakka hv. þm. Vilhjálmi Árnasyni fyrir hans ágætu spurningu. Meginmarkmið þessara breytinga er að koma til móts við athugasemdir sem gerðar voru í síðustu úttekt FATF á Íslandi þar sem Ísland lenti á svokölluðum gráum lista með ærnum tilkostnaði. Í flestum tilfellum er hér verið að fylgja þeim tilmælum en ég hygg þó að t.d. þær breytingar sem snúa að framkvæmd sektarinnheimtu og -álags séu frekar til skilvirkniauka en hitt.