156. löggjafarþing — 26. fundur,  4. apr. 2025.

breyting á ýmsum lögum um skatta, tolla og gjöld.

260. mál
[12:34]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Daði Már Kristófersson) (V) (andsvar):

Ég þakka hv. þm. Vilhjálmi Árnasyni fyrir hans ágætu spurningu og brýningu varðandi skilvirkni í öllum kerfum. Ég get glatt hann með því að þetta er mér líka mikið hjartans mál og ég hef í mínum störfum leitast við að brýna Skattinn og tollyfirvöld til þess að leita allra leiða til að framkvæmd þar sé með hagkvæmasta mögulega hætti.

Varðandi flutningsjöfnunargjaldið þá bendir hv. þingmaður á að það hafi ekki endilega skilað þeim árangri sem lagt var upp með. Hins vegar er alveg ljóst að hærri flutningskostnaður er þar sem lengra er á milli notenda og þess vegna held ég að hlutverk gjaldsins og þessa sé að einhverju leyti óumflýjanlegt, þ.e. við munum aldrei ná að hagræða í rekstri þessara fyrirtækja þannig að það verði ekki dýrara að flytja í strjálli byggðum en í þéttbýli. Ég hygg að það sé töluvert mikil samstaða í þessum sal um að Íslendingar sitji við sama borð hvað þetta varðar og að það sé mikilvægt.