156. löggjafarþing — 26. fundur,  4. apr. 2025.

breyting á ýmsum lögum um skatta, tolla og gjöld.

260. mál
[12:36]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S) (andsvar):

Frú forseti. Mig langar að spyrja hæstv. ráðherra að eiginlega hinu sama varðandi flutningsgjöldin og jöfnunina í dreifikerfinu í dreifbýlinu. Þetta hefur verið erfitt mál hér í þinginu, a.m.k. í þessi átta ár sem sá sem hér stendur hefur tekið þátt umræðunni sem snýr að þessu. Það er ánægjulegt að þó er verið að reyna að ná einhverjum af þeim markmiðum. Eins og kemur fram í frumvarpinu eru 70% jöfnuð í dag og mikilvægt að fara lengra. Líka kemur fram í umræðu sem snýr að því að náttúrlega hafa verið lagðir miklir fjármunir á undanförnum árum í bæði þriggja fasa væðinguna og síðan í dreifiveitu, eins og hjá Rarik, meira og minna í jörð með strengjum. Í dag eru því 80% af kerfi Rarik komin í strengi. Farið var í þá strengjavæðingu eftir mikil óveður sem voru 1991 og 1995. Var það verkefni til áratuga, 30, 35 ár átti það að taka. Nú er reiknað með að strengjavæðingu Rarik ljúki 2035.

En það verður að hjálpa þessu kerfi og jafna kostnað við dreifinguna. Ég tek svo sannarlega undir það og það er ánægjulegt að heyra, eins og ég skil hæstv. ráðherra ef það er rétt skilið, að það sé stefna ríkisstjórnarinnar að vinna með þetta. Jöfnunargjaldið er risastórt mál og réttlætismál að jafna orkukostnað með sem öflugustum hætti. Annars verður erfitt að byggja upp dreifbýlar sveitir landsins fyrir þá sem nýta sér þetta vítt og breitt um landið. Eru einhverjar hugmyndir um sameiningu Rarik við t.d. Orkubú Vestfjarða á borði hæstv. ráðherra eða önnur nálgun sem gæti aukið enn hagkvæmni til að á móti sé hægt að styrkja jöfnun á dreifikostnaði?