breyting á ýmsum lögum um skatta, tolla og gjöld.
Frú forseti. Það er margt hægt að ræða í svona miklu og stóru máli sem bandormurinn er. Hér eru kannski helstu málin peningaþvættið og FATF og það sem snýr að því, að við lendum ekki aftur á gráa listanum. Það vekur sérstaklega athygli þær heimildir tollyfirvalda sem verið er að veita hér, kannski loksins, til að leita í farangri að viðkomandi fjarstöddum. Það kemur mér satt að segja á óvart ef hér á Íslandi hafa ekki verið slíkar heimildir í lögum, að tollurinn hafi ekki getað leitað í innrituðum farangri án þess að þeir sem eiga viðkomandi farangur séu viðstaddir. Þetta er satt að segja með hreinum ólíkindum. Eins og ég hef séð erlendis þá er þegar farið er í tösku settur miði á hana og þú veist að farið hefur verið í gegnum hana. Reyndar væri áhugavert að vita hjá hæstv. ráðherra um þetta atriði og hvernig stendur á því að við séum að ræða þetta árið 2025, að ekki sé heimild til þess að leita í innrituðum farangri farþega í millilandaflugi eða öðru flugi ef þörf er á? Út frá áhugasviði þess sem hér stendur vekur þetta upp spurningar um hvernig þetta hefur getað komið upp með þessum hætti og er áhugaverð lesning sem snýr að þessu. Mesti hvatinn virðist vera að koma í veg fyrir að við lendum á gráa listanum og í FATF-dæminu en auðvitað hlýtur það að vera gríðarlega stórt og mikilvægt öryggismál að þessar heimildir séu til staðar.