156. löggjafarþing — 26. fundur,  4. apr. 2025.

breyting á ýmsum lögum um skatta, tolla og gjöld.

260. mál
[12:41]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Daði Már Kristófersson) (V) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hv. þm. Njáli Trausta Friðbertssyni fyrir hans ágætu síðari spurningu. Ég verð að viðurkenna við hann að sagnfræðiþekking mín á þróun íslenskrar lagasetningar leyfir mér ekki að svara spurningunni sem hann lagði fram en í ljósi þess að við erum sennilega á svipuðum aldri man hann örugglega eftir gömlu flugstöðinni eins og hún var. Sennilega hefur verið, þegar þessar reglur voru settar, hægara um vik að leita í farangri að farþeganum viðstöddum, eiganda farangursins. Eins og oft vill verða geta aðstæður breyst en lögin taka lengri tíma að ná upp í raunveruleikann. Sem betur fer hefur skilvirkni flughafna batnað til mikilla muna. Ég get svo sem ekki annað en tekið undir með hv. þingmanni um að það kom mér nokkuð á óvart að við værum fyrst á árinu 2025 að gera þessa breytingu.