breyting á ýmsum lögum um skatta, tolla og gjöld.
Frú forseti. Mig langaði að spyrja hæstv. ráðherra tveggja spurninga sem snúa að peningaþvætti og FATF, annars vegar hvort hann geti í samhengi við þetta frumvarp, þar sem verið er að bregðast við ábendingum, upplýst okkur um hvort nokkrar líkur séu á einhverju bakslagi í þeim efnum, það sé allt undir ágætri stjórn og engin hætta á því að við lendum aftur á slíkum lista. En síðari spurningin snýr að því að þegar við fórum í það að bregðast við þá var gengið ansi langt í hinu ýmsa og mig langaði að kalla eftir því hjá hæstv. ráðherra hvort væri einhver yfirferð eða skoðun á því hvort með einhverjum hætti mætti draga úr þeim íþyngjandi ákvörðunum. Þá er ég kannski sérstaklega að hugsa um það sem snýr að skráningu á raunverulegum eigendum í allra handa félögum og hjá ungabörnum, þetta er fyrsti gluggapósturinn sem nýir einstaklingar sem fæðast á þessu landi fá heim til sín ef þeir eru svo óheppnir að vera tengdir einhverjum hættulegum eins og þeirri sem hér stendur. Mig langaði að spyrja ráðherrann út í það. Ég myndi halda að það væri eitthvert rými til að gera það og tryggja að þetta sé með eins skilvirkum hætti og við getum haft það vegna þess að eins og svo oft áður þá gera reglurnar ráð fyrir því að við búum í mjög fjölmennu samfélagi þar sem tengslin eru allt öðruvísi heldur en þau eru þegar við erum færri en 400.000 manns þar sem nánast allir þekkja þetta hættulega fólk sem stjórnmálamenn virðast vera. Ég geri ráð fyrir því að stjórnarandstaðan öll myndi taka slíkri yfirferð og tillögum fagnandi og styðja ráðherrann til góðra verka í þeim efnum.