breyting á ýmsum lögum um skatta, tolla og gjöld.
Frú forseti. Ég vil þakka hv. þm. Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur fyrir góða spurningu og frábæra ábendingu. Nú hefur sá sem hér stendur einnig upplifað það að fá gluggapóst merktan börnunum með vægast sagt ógnvekjandi orðalagi um hvers konar hættu þau séu í, sem þau hafa í fyrstu orðið nokkuð skelkuð af að sjá þar til að ég útskýri fyrir þeim hvað er þarna um að ræða. Ég mun taka þessa fínu ábendingu til mín. Þessar breytingar sem ég mæli hér fyrir í dag eru til að uppfylla skilyrði sem komu sem ábendingar síðast þegar við lentum á gráum lista. Það er auðvitað mikið hagsmunamál, eins og hv. þingmaður veit úr sínum fyrri störfum, að við lendum ekki aftur á þeim lista. En það er fyllilega réttmætt sem hún nefnir, að það er engin ástæða til þess að við göngum verulega lengra en reglurnar gera ráð fyrir.