breyting á ýmsum lögum um skatta, tolla og gjöld.
Frú forseti. Mig langaði að nýta seinna andsvar í orkuhluta þessa frumvarps sem er aðeins á skjön við frumvarpið. En það er bara eins og gengur þegar verið er að taka til atriði. Það er rétt sem hér hefur komið fram frá öðrum hv. þingmönnum að reynslan og þróunin er því miður sú að þegar þetta gjald er hækkað þannig að það eigi að mæta þeim sem búa úti á landi og greiða meira fyrir að dreifa raforkunni þá líður almennt frekar skammur tími þar til það einhvern veginn hverfur í hækkun gjaldskrár. Á sínum tíma þegar ég fór með þennan málaflokk þá skoðuðum við nokkuð ítarlega hvort það væru aðrar leiðir til. Þær eru sannarlega til en það eru kostir og gallar við þær allar og það er ekki skynsamlegt að fara í nýtt kerfi sem hljómar vel og lítur vel út á pappír en er mögulega þunglamalegra og erfiðara að hafa yfirsýn og eftirlit með. Ég er þó þeirrar skoðunar, og ég held að það séu einnig margir hér í þessum þingsal, að það þurfi að yfirfara þetta vegna þess að það er ósanngirni í því hversu mikill munurinn er enn þá. Og þetta segi ég sem núverandi þingmaður höfuðborgarsvæðisins og fyrrverandi þingmaður Norðvesturkjördæmis. Það er stundum sagt að það sé ekki sanngjarnt að hækka einhver gjöld og skatta á höfuðborgarbúa fyrir landsbyggðina en þá er nú ágætt að minna á að það er einmitt úti á landi þar sem öll raforkan verður til, ekki á höfuðborgarsvæðinu. Ef við raunverulega meinum eitthvað með byggðaaðgerðum og því að við viljum að fólk hafi frelsi til að velja sér búsetu þá er sjálfsagt og eðlilegt að þar sem auðlindin er og orkan er virkjuð þá kosti ekki miklu meira að dreifa henni. Það er þá bara sameiginlegt verkefni okkar að finna skynsamlegustu leiðina til að gera það. Ég veit að þetta heyrir auðvitað undir fagráðherra líka en mig langaði að spyrja ráðherra hvort þetta sé eitthvað sem er í skoðun, einmitt vegna þess að það er tekið fram í stjórnarsáttmála að það sé áhersluatriði að jafna þetta enn frekar.