breyting á ýmsum lögum um skatta, tolla og gjöld.
Forseti. Ég þakka hv. þm. Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur fyrir aðra mjög góða spurningu. Eins og hún veit þá er flutningur og dreifing á raforku hjá því sem í fræðunum er kallað náttúrlegt einokunarfyrirtæki, þar sem er svo miklu dýrara að hafa samkeppni á markaðnum að yfirleitt leysa samfélög það bara með því að regla flutningsaðilana. Það er sannarlega gert á Íslandi með tekjumörkum og spurningin er hvort hægt sé að tryggja með einhverjum hætti að aukið svigrúm til hækkana verði ekki misnotað með því að beita þeim hluta löggjafarinnar. En eins og hv. þingmaður benti á þá heyrir það í sjálfu sér ekki undir mitt ráðuneyti. Það er hins vegar alveg rétt sem hér kemur fram að það er mikilvægt að svigrúmið sé ekki misnotað.