breyting á ýmsum lögum um skatta, tolla og gjöld.
Frú forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna. Hann fór ágætlega yfir svokallaðan bandorm. Það er af mörgu að taka. Ég kem til með að fara yfir ákveðna þætti í ræðu minni hér á eftir. Það sem mér fannst kannski áhugaverðast í ræðu þingmannsins laut að þessum þáttum er snúa að peningaþvætti. Þetta er töluverð breyting í íslensku samfélagi. Auðvitað er slæmt að vera á einhverjum svörtum eða gráum lista og eflaust þurftum við að taka okkur saman í andlitinu, en ég heyri það víða í samfélaginu, ekki bara gagnvart kjörnum fulltrúum, um íþyngjandi kröfur sem leggjast á fyrirtæki í sínum rekstri og tengjast þessu beint eða óbeint. Mig langar að spyrja hv. þingmann út í þessa hræðslu sem virðist vera að ná fótfestu í samfélaginu, m.a. að við séum að ganga það langt að það eigi að fara að banna reiðufé. Hann hefur eflaust heyrt af þeim pælingum. Hvernig getum við komið í veg fyrir það og verið viss um að við séum ekki hvað peningaþvætti varðar með einhverja óþarfagullhúðun? Hvernig getum við komist að því hvort við séum á sambærilegum stað og til að mynda Norðurlandaþjóðirnar hvað þetta varðar? Veit þingmaðurinn til þess að við höfum gert einhverja könnun á því? Þetta snýst auðvitað um samkeppnishæfni, m.a. fyrirtækja, og líka hvernig okkur líður í íslensku samfélagi.