156. löggjafarþing — 26. fundur,  4. apr. 2025.

breyting á ýmsum lögum um skatta, tolla og gjöld.

260. mál
[13:07]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Jóhanni Friðriki Friðrikssyni kærlega fyrir þessar góðu spurningar og vangaveltur. Ég held að það sé margt í mörgu í þessu. Það sem kannski gerist á Íslandi umfram önnur lönd er að við lendum á þessum gráa lista. Það höfðu ekkert margir verið að lenda á honum og margir vildu meina að við hefðum verið fórnarlömb vissrar pólitíkur hjá þeim eftirlitsaðilum en ég ætla ekki að skera úr um það. Ég held að það sem við séum að takast á við í þessu varðandi FATF eða varnir gegn peningaþvættinu er að við erum smáríki þar sem allir þekkjast. Raunverulega erum við öll tengdir aðilar á Íslandi, við erum það fá. Við lentum á listanum og þurftum að komast út af honum. Það var okkur mjög dýrt og torvelt að vera á honum þannig að við unnum mjög hratt í því að komast út af honum og vildum alveg örugglega komast út af honum. Ég held að núna sé einmitt tækifæri til að draga aðeins andann og sjá hvernig önnur ríki eru að gera þetta, hvað önnur ríki komast upp með að ganga skammt í þessu. Við þurfum líka að fara yfir það hvort við höfum oftúlkað einhverjar reglur eða hugtök sem eiga ekki við í okkar litla landi. Bílasalar eru farnir að þurfa að yfirheyra kúnnann sinn. Ef bóndinn kemur bara eins og hann hefur alltaf gert, fer í bankann, tekur út pening og vill fá að staðgreiða sinn bíl og fá sitt merki á húddið þá er það nú allt orðið að stóru vandamáli. Þetta er því farið að hafa áhrif á íslenska menningu.