156. löggjafarþing — 26. fundur,  4. apr. 2025.

breyting á ýmsum lögum um skatta, tolla og gjöld.

260. mál
[13:09]
Horfa

Jóhann Friðrik Friðriksson (F) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka þingmanninum fyrir andsvarið og að eiga hér orðastað við mig. Það sem ég hef áhyggjur af, virðulegi forseti, er að ég hef ekki tilfinningu fyrir því hvort við séum að ganga lengra en aðrar þjóðir til að mæta þessum skilyrðum. Það skiptir máli. Ég hef ekki bara áhyggjur af því hvað varðar peningaþvætti. Það kemur fram í þessu ágæta frumvarpi og kom fram í andsvari hv. þm. Njáls Trausta Friðbertssonar hér áðan að hann furðaði sig á því að við hefðum ekki haft heimildir í lögum til að skoða farangur nema með farþegann viðstaddan. Þar af leiðandi má leggja út af því að mögulega hafi farið háar fjárhæðir inn og út úr landinu án þess að nokkur gæti rönd við reist. Auðvitað er sjálfsagt að loka slíkum glufum. Ég held að það sé algjörlega sjálfsagt. Þingheimur brast nú í hlátur þegar menn voru að ræða það vegna þess að það er auðvitað fjarstæðukennt að við höfum ekki haft þær heimildir og að tollyfirvöld hafi ekki haft þær heimildir. Að sama skapi er ég að velta fyrir mér hvernig við getum tryggt það að við komumst út af einhverjum svörtum listum og séum ekkert opnari eða öðruvísi en þær þjóðir sem við berum okkur saman við og erum sannarlega í samkeppni við, að við séum með eitthvert ferli til þess að kanna það eftir að innleiðingu er lokið hvort við séum að ganga lengra. Þetta á ekki bara við um peningaþvættismál, þetta á líka við um persónuverndarmál. Við þingmenn höfum í nefndum velt því fyrir okkur hvort okkar innleiðing gangi mun lengra og sé meira íþyngjandi heldur en þeirra landa sem við berum okkur saman við. Því spyr ég þingmanninn: Þurfum við ekki einhvers konar kerfi til þess að geta metið hvar við stöndum eftir að innleiðingu er lokið og (Forseti hringir.) er ástæða til að taka einhver skref aftur á bak?