156. löggjafarþing — 26. fundur,  4. apr. 2025.

breyting á ýmsum lögum um skatta, tolla og gjöld.

260. mál
[13:11]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir góða umræðu. Ég held að við Íslendingar höfum stundum átt það til, sem fámenn þjóð en öflug, að vilja alltaf vera best í heimi. Við þurfum að passa okkur á því líka þegar við förum að setja reglurnar og innleiða löggjöfina. Við köllum þetta alltaf gullhúðun en ég hef samt frekar viljað kalla þetta blýhúðun, af því að þetta er íþyngjandi og dregur úr mörgu. Við þurfum því að passa okkur á þessu í peningaþvættisreglunum. Með persónuverndarreglurnar er þetta svipað eins og með peningaþvættisreglurnar. Við þekkjum það bara úr venjulegu félagsstarfi. Varla er hægt að starfa í félögum þar sem þú mátt ekki vita hverjir eru með þér í félagsskapnum og hitt og þetta og það þarf að fá leyfi á hinum ýmsu fundum fyrir hinu og þessu sem hefur íþyngjandi áhrif. Þetta er því farið að hafa svo margþætt áhrif í samfélaginu, eitthvað sem samfélagið sjálft er ekki að kalla eftir. Við verðum svolítið að fá að lifa í því samfélagi sem við viljum, vera frjáls og annað, en megum samt ekki vera bláeyg þar sem öll landamæri hafa dregist saman og heimurinn er orðinn minni, opnara og frjálsara flæði í heiminum, og því þurfum við líka að fara varlega. Litla saklausa þjóðin þarf líka að passa sig og athuga þarf að við séum örugglega að fara eftir reglunum. Eins og hv. þingmaður nefndi eigum við samt að passa okkur að ganga ekki lengra en nauðsyn krefur og það sem við viljum sem þjóð. Ég held að líka þurfi að fara yfir það varðandi gegnumlýsingu á Keflavíkurflugvelli.