breyting á ýmsum lögum um skatta, tolla og gjöld.
Virðulegi forseti. Ég biðst afsökunar á að vera seinn hér upp í ræðustól en ég gerði heiðarlega tilraun til að leita að hv. þm. Bergþóri Ólasyni. En hér er ég kominn og ætla að fá að ræða bandorminn. Við erum að ræða hérna auðvitað mikilvægt mál sem er í nokkrum köflum, ef svo má segja. Frumvarpið tekur auðvitað á ýmsum mikilvægum þáttum. Í fyrsta lagi erum við að tala um að víkka út tilkynningarskyldu um flutning á fjármunum yfir landamæri. Einnig eru lögð til skilyrði og skýrari viðurlög, ef svo má segja, varðandi sektir á ótilkynntum fjármunum. Í öðru lagi felur frumvarpið í sér mikilvægar heimildir fyrir tollyfirvöld til að framkvæma leit í farangri eins og hér hefur verið ágætlega farið yfir í yfirlitsræðu hæstv. ráðherra. Í þriðja lagi erum við að tala um þætti sem snúa að brotum á tollalögum og í fjórða lagi, kannski einna helst það sem mig langar að fjalla um hér á eftir, breytingar sem snúa að flutningsjöfnun á raforku, þannig að það er af ýmsu að taka, virðulegi forseti.
Mig langar kannski að leggja áherslu á það í ræðu minni sem snýr að flutningsjöfnuninni. Þetta er þjóðþrifamál og það kemur mér pínulítið á óvart að þetta sé raunverulega ekki flóknara mál heldur en raun ber vitni og kemur hér fram í textanum, vegna þess að við sem höfum búið úti á landi höfum sannarlega verið að berjast fyrir þessum breytingum og þess vegna vil ég fagna þeim alveg sérstaklega. Það skiptir máli að lyfta upp því sem vel er gert. Vandinn hefur verið að felast í því að jöfnunargjaldið hefur verið fast gjald. Það hefur sjaldan verið uppfært, var uppfært 2015 og síðan 2022, en við höfum ekki náð fullkominni jöfnun og það er það sem lagt er til hér í þessum bandormi. Þar af leiðandi kemur jöfnun dreifikostnaðar á seinni hluta ársins til með að hækka jöfnunargjaldið úr 0,41 kr. í 0,76 kr. á hverja kílóvattstund fyrir forgangsorku, og fyrir skerðanlega orku úr 0,13 kr. í 0,25 kr. á hverja kílóvattstund.
Það er gengið lengra og lagt til að það verði fullkomin jöfnun. Ég er nú ekki með sagnfræðina á hreinu, virðulegi forseti, en ég held að það hafi aldrei verið gert. Ég held að hafi alltaf verið einhver munur þarna á. Þetta er bara þjóðþrifamál og skiptir auðvitað landsbyggðina töluvert miklu máli. Vissulega er hækkunin aðeins á fólk í þéttbýlinu en það er ágætlega farið yfir þetta í textanum. Þetta kemur til með að hafa óveruleg áhrif en töluverð áhrif fyrir fólk úti á landi. Nú erum við auðvitað ekki með fullkomið kerfi hvað þetta varðar og það væri alveg vert að skoða leiðir til þess að við þyrftum ekki að fara í einhverja sérstaka breytingu á lögum til að tryggja þetta í framtíðinni, við værum bara með þetta tengt þannig að þetta myndi gerast sjálfkrafa. Ég er ekki endilega með leiðina í því, virðulegi forseti, en ég held að það sé ekki ráðlegt að þurfa að vera að koma með einhverjar svona breytingar, sem mér finnst vera sjálfsagðar, í bandormi, þá á einhverra ára fresti og taka þá einhver stökk í hvert skipti fyrir sig.
Hér í umræðunni hefur einnig verið fjallað um þessa þætti sem snúa að skyldum okkar gagnvart því að koma í veg fyrir peningaþvætti. Mig langar aðeins að staldra við það. Ég ræddi það aðeins hér áðan við hv. þm. Vilhjálm Árnason hvert við værum að stefna í því heilt yfir, en sú breyting að það sé hægt að leita í farangri almennt hér á landi við brottför eða innkomu í landið án þess að vera með viðkomandi aðila viðstaddan og gefa þá út einhvers konar merki um að leitað hafi verið í farangri, eins og við þekkjum sem höfum bæði farið til Evrópu og Bandaríkjanna, ætti að vera tiltölulega auðvelt. Það kann að vera að það þurfi einhvern sérstakan búnað til að tryggja þetta en með allar svona heimildir, þó að ég fagni þeim, þá þurfum við að passa okkur á því að við séum ekki að ganga lengra þar en nágrannalöndin. Það gefur alveg augaleið að ef það fer fram tollskoðun þá þurfum við að láta viðkomandi aðila vita þótt eftir á sé. Ég held að það geti allir tekið undir það að ef það er farið í gegnum farangurinn okkar, sem er auðvitað persónulegt fyrir okkur, þá viljum við fá að vita hvort það sé búið að vera að eiga við hann eður ei. Ég treysti stjórnvöldum til að slíkt verði framkvæmt. Þar af leiðandi styð ég þessa breytingu enda svo sem bara í takt við það sem hefur verið að gerast í nágrannalöndunum okkar í langan tíma og þess vegna, eins og ég nefndi hér í andsvari, kannski pínulítið spaugilegt að við séum svona langt á eftir öðrum hvað þetta varðar.
Þetta er mikilvægt frumvarp og auðvitað er það þannig þegar við fáum svona bandorm inn í þingið að þá vill maður kannski leggja meiri áherslu á einn anga málsins fremur en annan en þetta hefur fengið fína umræðu og ég er alveg sannfærður um það að efnahags- og viðskiptanefnd mun fara vandlega yfir málið að auki. Þess vegna vildi ég nefna sérstaklega til þeirra sem sitja í þeirri ágætu nefnd, og má vel vera að hæstv. ráðherra geti fylgt því eftir að auki, að við setjum okkur skýrar reglur um það hvernig við komum til með að fylgja þessu eftir. Þá á ég við einhvers konar verklagsreglur af hálfu tollyfirvalda til að tryggja að árangurinn af svona lagabreytingu nái fram að ganga.
Virðulegi forseti. Þetta er kannski það tvennt sem stendur upp úr í þessu frumvarpi og ég vildi nefna í ræðu minni og læt ég þar af leiðandi þessari stuttu yfirferð minni lokið.