156. löggjafarþing — 26. fundur,  4. apr. 2025.

breyting á ýmsum lögum um skatta, tolla og gjöld.

260. mál
[13:23]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni ræðuna. Það er tvennt í henni, annars vegar er hv. þingmaður búsettur suður með sjó og ég veit að hann þekkir vel til starfsemi í Keflavík. Þekkir hv. þingmaður til þess með hvaða hætti þessar reglur sem nú er verið að rýmka til eftirlits á vellinum skoðast ef við berum okkur saman við þau lönd sem við alla jafna berum okkur helst saman við? Hv. þingmaður sat áður í utanríkismálanefnd, þótt það sé ekki bein aðkoma að þessu. Höfum við verið svona barnaleg í þessum efnum hingað til eða hvernig skoðast regluverkið eins og hér er lagt til að það verði við hlið þess sem hv. þingmaður þekkir til í samanburðarlöndunum, þessum algengustu?