156. löggjafarþing — 26. fundur,  4. apr. 2025.

breyting á ýmsum lögum um skatta, tolla og gjöld.

260. mál
[13:24]
Horfa

Jóhann Friðrik Friðriksson (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Bergþóri Ólasyni kærlega fyrir mjög góða spurningu. Það vill þannig til, þó að ég geti kannski ekki farið ofan í smæstu smáatriði hvað það varðar, að ég þekki ágætlega til tollgæslunnar á Keflavíkurflugvelli. Þar hafa menn til að mynda verið að ná gríðarlega góðum árangri í því að stemma stigu við peningaþvætti. En það sem hald hefur verið lagt á hefur fyrst og fremst verið hjá viðkomandi einstaklingum sem hafa verið að fara í flug. Ef ég þekki tölurnar rétt hefur sú haldlagning verið í töskum einstaklinga sem hafa verið með slíkt í handfarangri eða á sér. Þetta kemur til með að gera það að verkum að það verður hægt að fylgjast með í gegnumlýsingu hvort verið sé að flytja til að mynda fjármagn eða eftir atvikum eitthvað ólöglegt í farangri fram og til baka á milli Íslands og þeirra landa sem við erum með tengiflug til án þess að kalla til eiganda. En vissulega er það rétt og ég get rétt ímyndað mér að eflaust hafi það verið gert í gegnum tíðina að eigandi hafi verið kallaður til og farangur hans skoðaður. Þess vegna segi ég að þó svo það komi til þess að við gerum þessar breytingar þá þurfum við auðvitað að vera viss um að regluverkið í kringum þær geri það að verkum, komi til að mynda til þess að slík mál fari fyrir dóm eða að menn þurfi að fara lengra með slík mál, að þær haldi, vegna þess að það er auðvitað eðli laganna að við getum komið í veg fyrir lögbrot. Ég held því að þetta sé bara svipað og hefur verið framkvæmt í löndunum í kringum okkur. Við erum með afskaplega hæft og öflugt fólk hjá tollgæslunni, ekki bara á Keflavíkurflugvelli heldur um allt land og ég heimsótti það ágæta fólk fyrir kosningar. Aðstaða þess er eitthvað sem við þurfum að bæta. Við þurfum að horfa m.a. til þess, virðulegi forseti, í framhaldi af þessari lagasetningu.