breyting á ýmsum lögum um skatta, tolla og gjöld.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni svarið. Hitt atriðið sem mig langaði til að spyrja hv. þingmann út í, í ljósi þess að Framsóknarflokkurinn hefur í gegnum tíðina haft töluverðar skoðanir á dreifikostnaði raforku á landsbyggðinni og þeirri jöfnun sem er verið að bæta í með þessari breytingu sem hér er lögð til: Telur hv. þingmaður að þarna sé réttur tónn sleginn eða taktur, ef svo má segja, og hefur þingmaðurinn eitthvað glöggvað sig á þeim sjónarmiðum sem komu fram m.a. í andsvari hv. þm. Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur um það sem við þekkjum öll sem hér erum, og kom sömuleiðis fram í ræðu hv. þm. Vilhjálms Árnasonar, að dreifikostnaðurinn hafi alltaf trappast upp í beinu framhaldi af viðbótarfjárveitingum til þessa stuðnings?