breyting á ýmsum lögum um skatta, tolla og gjöld.
Virðulegi forseti. Ég þakka þingmanninum fyrir spurninguna og tek alveg undir þessar áhyggjur. Ég kom aðeins inn á það í minni ræðu að samkvæmt upplýsingum frumvarpsins voru þessar breytingar gerðar 2015–2022, ef ég man rétt, en hafa ekki náð fullri jöfnun. Þess vegna velti ég fyrir mér og get alveg tekið undir það sem þingmaðurinn nefnir, að það er auðvitað alltaf áhyggjuefni almennt þegar við erum að gera svona breytingar að þær snúist í andhverfu sína og einhverjir nýti þá tækifærið til þess að hækka hinum megin. Það var ástæðan fyrir því að ég ljáði máls á því hvort þetta væri rétta aðferðafræðin til að ná jöfnuninni fram. Ég er ekki með fullmótaðar hugmyndir um hvernig væri hægt að gera þetta öðruvísi en ég held að það skipti mjög miklu máli að aðgerðin um jöfnunina nái til þeirra sem hún á að ná til en verði ekki til þess að trappa upp verð í framhaldinu þannig að við þurfum að elta skottið á okkur hvað þetta varðar, ríkisvaldið eða stjórnvöld á hverjum tíma. Það mætti kannski bara auglýsa eftir því. Ég náttúrlega vænti þess að það sé, eins og þingmaðurinn nefnir, ekki bara Framsókn heldur mjög margir stjórnmálamenn örugglega úr flestum flokkum sem hafa verið að velta fyrir sér hvernig væri hægt að gera þetta betur. Því er kannski ástæða til að kalla eftir því hvort einhvers konar önnur aðferðafræði geti gert það að verkum. Til að mynda þurfum við eftir tvö ár að heimsækja þetta mál aftur vegna þess að breytingarnar á gjaldskrá munu raunverulega hafa þurrkað út eða breytt þessu jafnvægi.