breyting á ýmsum lögum um skatta, tolla og gjöld.
Virðulegur forseti. Við ræðum hér eins konar bandorm hæstv. fjármálaráðherra þar sem lagðar eru til breytingar á einum sex lagabálkum í íslenskum rétti. Áður en ég fer beint í efnisatriði frumvarpsins eru nokkur atriði sem ég vil nefna hér gagnvart stóru myndinni. Í fyrsta lagi er það sem hefur verið nokkuð rætt og snýr að, með leyfi forseta, Financial Action Task Force, FATF, þetta hljómar eins og einhver hryðjuverkasamtök en þau hafa það alla vega ekki sem yfirlýst markmið. Þetta eru einhvers lags samtök sem drjúgur hluti þeirra þjóða sem við eigum í mestum samskiptum við vinnur með en ég held að það séu einar 15 Evrópusambandsþjóðir sem ekki vinna með þessu apparati, FATF. Óþægindin af því að lenda á þessum litalistum þeirra, svarta eða gráa, virðast vera með þeim hætti að það er sérstakt tilefni til að hugsa hversu íþyngjandi svona ókjörin apparöt geta verið í því samhengi sem þau taka sér. Mann grunar að svona apparat njóti vigtarinnar sem er að einhverju marki sjálftekin og það er ekki víst að það hafi verið markmiðið í upphafi.
Það breytir því ekki að það er auðvitað mikilvægt að vinna gegn peningaþvætti í þeim myndum sem það birtist sem og fjármögnun hryðjuverka. En ég get alveg gengist við því að ég velti því oft fyrir mér hvort vel takist til í raun, hvort hin íþyngjandi áhrif á hinn almenna borgara og heiðvirð fyrirtæki séu ekki þegar öllu er á botninn hvolft megináhrif slíkrar vinnu. Glæponarnir, svo maður noti nú það orð sem samheiti yfir þá sem eru öfugum megin laganna, finna sér sínar leiðir í þessum efnum og hafa alltaf gert og munu því miður að líkindum alltaf gera það með einhverjum hætti. Ég held að ég fari í það verkefni núna á næstunni að glöggva mig á þessu apparati, FATF, þannig að ég sé almennilega umræðufær um það en mér sýnist þeir vera búnir að taka sér svona ívið meiri vigt heldur en uppleggið var með formun þeirrar grúppu 1989, ef mig misminnir ekki.
Það eru hér atriði sem hafa verið rædd sömuleiðis varðandi auknar heimildir til að leita í innrituðum farangri án þess að eigandi farangurs sé viðstaddur. Ég skil það þannig að það sé að meginhluta til verið að færa þetta til þess horfs sem verið hefur í löndunum í kringum okkur. Það kann að vera að þetta kalli á einhverja aukna aðstöðu eða tækjakost eða hvernig sem því er nú háttað á innkomustöðum til landsins og þá er það eitthvað sem verður áhugavert að sjá hvort ríkisstjórnin bregst við með sérstakri fjárveitingu eða hvort þetta verður tekið innan þeirra ramma sem til staðar eru.
Ég ætla nú aðeins að bakka aftur að FATF-grúppunni, atriði sem ég gleymdi að nefna. Það snýr að þessum aðgerðum sem gripið var til þegar við lentum á þessum svokallaða gráa lista þeirra. Mér segir svo hugur að netinu hafi verið kastað býsna vítt þegar kom að því að ná Íslandi aftur af þessum gráa lista sem landið hafði fundið sig á þarna einhvern morguninn. Við þekkjum öll þessa furðuumræðu hér þegar kórstjórar og einhverjir gjaldkerar í húsfélögum landið um kring sátu sveittir við og skráðu sig sem raunverulega eigendur einhverra apparata sem höfðu ekkert gildi sem slíkt gagnvart viðkomandi. Fyrsta bréfið sem dóttir mín, sem nú er að verða þriggja ára, fékk var bréf sem ættingjar okkar og nátengdir okkur sem hér erum inni hafa öll fengið þar sem því er lýst í svona heldur hranalegu lögfræðimáli að þau séu undir miklu eftirliti og umgangist fólk sem þarf að hafa sérstakt eftirlit með. Ég á bágt með að trúa að þetta sé mýksta leiðin sem hægt er að fara til að berjast gegn fjármögnun erlendra eða innlendra, hvar sem þau koma til á endanum, hryðjuverka og peningaþvættis, að einhver kornabörn á Íslandi fái bréf frá Creditinfo og sambærilegum apparötum um að foreldrar þeirra séu undir sérstöku eftirliti. Þetta er allt einhver furða, að fólk þurfi að segja sig úr stjórnum íþróttafélaga af því það er eitthvert manngrey sem situr í sömu stjórn sem vinnur hjá fyrirtæki sem er skráð á markaði og þar með hringja allt í einu allar viðvörunarbjöllur gagnvart þeim aðila. Það getur ekki hafa verið markmiðið að okkar 400.000 manna þjóð fyndi sig í þessari stöðu.
Ég bara vil hvetja hæstv. ráðherra til að skoða það af alvöru ekki bara hvort heldur hversu langt er hægt að stíga til baka í þessu reglubixi öllu sem ég held að hafi gengið allt of langt og menn farið langt fram úr sér, eflaust til að komast hratt af þessum svokallaða gráa lista FATF-samtakanna sem virðist hafa svona — ja, ég þekki ekki forsöguna nægjanlega, hvort það var einhver sofandaháttur eða hvað það var en mig grunar að þetta apparat hafi sérstakt gaman af því að sýna styrk sinn og vöðvabyggingu þegar tækifæri gefst til. Ég vildi bara halda því til haga að regluverkið eins og það er núna finnst mér ekki á vetur setjandi hvað varðar íþyngjandi áhrif á afkomendur þeirra sem með einum eða öðrum hætti tengjast stjórnunarstöðum í samfélaginu.
Síðan er hér atriðið sem snýr að dreifingu raforku. Dreifing raforku og jöfnun kostnaðar við hana er eilífðarverkefni að því er virðist. Þetta virðist vera sjálfrekið höfrungahlaup þar sem hækkun á stuðningi sem tekin er ákvörðun um hér á Alþingi virðist næstum því sjálfkrafa ýta undir hækkun á dreifikostnaði hverrar dreifiveitu þannig að raunverulegi munurinn verði áfram hinn sami. Þetta er auðvitað ekki hugsunin, ekki ætlunin, en svona hefur raunveruleikinn blasað við okkur. Ég mun styðja við þessa ákvörðun í atkvæðagreiðslu hér síðar en ég held að við verðum að framkvæma einhverja greiningu á því hvort við séum sífellt að elta skottið á okkur í þessum efnum eða hvað orsaki það að fyrir svona algjöra tilviljun séu, að því er virðist af umræðunni að dæma, þessi stökk í verðskrá dreifiveitnanna að eiga sér stað svona nátengt því þegar viðbótarstuðningur kemur til að jafna þennan kostnað, því pólitíska markmiðið er auðvitað að jafna dreifikostnað við það sem gerist hér á þéttbýlasta svæðinu og það verður að hafa í huga að orkan er öll að verða til úti á landi. Orkan er öll framleidd úti á landi og það er auðvitað einhver svona innbyggð ósanngirni í því að þau svæði sem leggja til orku til að keyra áfram okkar frábæra samfélag, hvort sem það er til stórkaupendanna eða smærri fyrirtækja og heimila, finni sig í þeirri stöðu að búa við miklu hærra raforkuverð í raun þegar heildarmyndin er skoðuð heldur en þéttbýlissvæðin því að frá þessum svæðum kemur meginþungi raforkunnar sem við erum að nýta til hinnar miklu og nauðsynlegu verðmætasköpunar sem hér fer fram. Ég vil bara hvetja hæstv. ráðherra ef hann heyrir í mér eða öllu heldur fagráðherra þess málaflokks til að vinna greiningu á þessu þannig að við þingmenn eigum þá auðveldara, a.m.k. í næsta hring þegar kemur til næstu umferðar í höfrungahlaupinu, að glöggva okkur á því hvort við séum hugsanlega að beita röngu meðali við þessum krankleika sem hér blasir við.
Síðan get ég eiginlega ekki annað en nefnt það sem snýr að ívilnunum á bílakaupum. Það var tekin ákvörðun, ætli séu ekki tvö, mögulega þrjú þing síðan, að færa að miklu leyti til þennan stuðning úr skattaívilnunum yfir í beinar endurgreiðslur eða niðurgreiðslur til þeirra sem fjárfesta í nýorkubílum undir tilteknu verði, þyngd og ég man ekki parametrana alla. Ég held að þarna þurfum við einhvern veginn að horfa til þess að leita að einfaldari leiðum heldur en við höfum verið að vinna með núna. Ég held að þessi endurgreiðsla í gegnum Orkusjóð hafi ekki verið hugsuð til enda þannig að það ætti og í raun að skoða að vinda ofan af þeirri vegferð. Ég held sömuleiðis að við ættum að horfa til þess að vinda ofan af þessari ofurskattlagningu á akstur og ökutæki, og sérstaklega ökutæki í þessu tilviki. Sjáum nú bara, af því að nú eru ekki nema rúmir tveir sólarhringar síðan tilkynnt var um breytta nálgun á tollamál í Bandaríkjunum, að við erum hér að stórum hluta til með 65% vörugjöld á bíla sem eru framleiddir í Bandaríkjunum á meðan vörugjöldin eru 5% á nýorkubílana. Er nema von að einhverjum verði um þarna fyrir vestan haf að andúð okkar í garð framleiðslu þar sé með þeim hætti að við leggjum 65% vörugjald á bíla framleidda þar? Ég held að við ættum að horfa til þess að lækka þá tölu umtalsvert.
Ég held að þessi gríðarlega neyslustýring sem felst í regluverkinu um gjaldtöku á vörugjöldum á innfluttar bifreiðar, þær eru auðvitað allar innfluttar meira og minna — ég held að þau skilaboð séu röng, bara eins og kerfið er byggt upp hjá okkur. Við viljum að ökutæki mengi minna, séu mildari gagnvart umhverfinu. Við viljum að fólk, sérstaklega barnafólk, keyri um í öruggari bílum frekar en gömlum útjöskuðum með minni gæði hvað öryggisþætti varðar. Við viljum hvetja til þess að bílaflotinn sé í góðu standi, rétt eins og það er sérstakt markmið að fiskiskipaflotinn endurnýist með öllum þeim jákvæðu áhrifum sem það hefur, bæði á áhafnir, umhverfið og arðsemi og bara getuna til að sækja fisk í sjó. Ég vil eiginlega bara leggja í púkkið hérna að við förum hér í umræðu um það í þinginu, þetta er ekki akút mál, við getum geymt það til hausts en ég held að það væri áhugavert að draga fram sjónarmið þingflokka hér í þinginu gagnvart þessu skattlagningarkerfi nýskráningar bifreiða. Ef við viljum senda þau skilaboð t.d. til Bandaríkjanna að okkur þyki þessi 65% vörugjöld bara fín og að ef eitthvað er vildum við hækka þau þá er bara fínt að það liggi fyrir. Það er ekki víst að það verði okkur til gagns en það kemur þá bara í ljós. En rökin að það séu bara svo miklar tekjur af þessu að við getum ekki átt við þetta þykja mér ekki góð því að þetta dregur úr endurnýjun, hægir á endurnýjun bílaflotans. Þetta orsakar það að almenningur keyrir um á minna öruggum bílum heldur en annars væri, almenningur og fyrirtæki landsins aka um á bílum sem að jafnaði menga meira en annars væri og þar fram eftir götunum þannig að við eigum að snúa þessum hvötum við og auðvelda fólki og fyrirtækjum að endurnýja bíla sína í stað þess að skattpína með þeim hætti sem raunin er núna og í ofanálag senda þeim fyrir vestan haf skilaboð með þeim hætti sem regluverkið rammar inn nú um stundir.