breyting á ýmsum lögum um skatta, tolla og gjöld.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Bergþóri Ólasyni fyrir hans yfirferð yfir málaflokkinn og reifun á sínum skoðunum á málinu. Mig langaði að beina spurningu til hans varðandi einn þátt og eina athugasemd. Hann nefnir hér FATF-samtökin, sem hann kallar svo, og talar alltaf um samtök. Það mætti halda jafnvel af ræðunni að hérna væru samtök eins og Greenpeace eða einhver samtök sem taka að sér verndun einhverra villtra dýra. Ef ég les Wikipediugreinina rétt og allt sem um þessi samtök stendur þá eru þetta samtök ríkja. Þetta eru sem sagt „intergovernmental organisation“, þetta eru samtök sem aðild eiga að ríkisstjórnir ríkja. Og hvaða ríkisstjórnir eru það? Það eru ríkisstjórnir smáríkja eins og Bandaríkjanna, Bretlands, flestra Evrópuríkja, flestra ríkja sem eru með virk fjármálakerfi sem taka ber mark á.
Þingmaðurinn nefnir að 15 af ESB-ríkjum séu ekki aðilar að því. Það er rétt. Hins vegar er framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins með beina aðild að samtökunum, þ.e. Evrópusambandið sjálft er með aðild að samtökunum. Ef maður lítur yfir lista þeirra landa sem þar eru ekki þá eru það greinilega lönd sem gengið hafa í Evrópusambandið eftir árið 2000. Þau hafa því ekki séð sér nauðsynlegt að ganga inn í samtökin beint vegna þess að Evrópusambandið, sem þessi lönd hafa aðild að, er þar aðili.
Mig langar því að spyrja hvort þingmaðurinn telji ekki að hann hafi aðeins léttvægt verið skautað yfir að það hljóti vera eitthvað vont að vera á svörtum eða gráum lista hjá þessum samtökum þegar um er að ræða samtök sem er samband ríkisstjórna með öll helstu fjármálakerfi í heimi. Ég verð líka að upplýsa það að ég hef farið á fund með Samtökum fyrirtækja í fjármálaþjónustu, sem efnahags- og viðskiptanefnd fór á, og þá var mjög þung áhersla lögð á það af hálfu þeirra samtaka að það væri mjög brýnt fyrir Ísland að komast af þessum gráa lista sem við værum á. Þannig að ég spyr bara þingmanninn: Hefur hann ekkert talað fullléttvægt hér í pontu Alþingis um áhrif þess að vera á þessum gráa lista og er hann tilbúinn að endurskoða þessa afstöðu sína?