breyting á ýmsum lögum um skatta, tolla og gjöld.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Pawel Bartoszek fyrir andsvarið. Ég held að ég þurfi í sjálfu sér ekki að endurskoða afstöðu mína að neinu leyti því að ég dró ekkert úr alvarleika þess að lenda á þessum listum. Ég var bara að draga fram að mér sýnist á því sem ég hef lesið um þetta apparat sem FATF er — eins og segir hérna, með leyfi forseta, ég skal reyna að hraðþýða þetta: „The Financial Action Task Force has no direct enforcement power but it has significant leverage over countries and financial institutions through its ability to blacklist or greylist jurisdictions.“
Þetta er svona í stuttu máli: FATF hefur engar beinar þvingunarheimildir en í gegnum það að setja lönd á svartan eða gráan lista hafa samtökin, eða félagsskapurinn eða hvað sem við köllum það, gríðarlega vigt yfir hagrænni stöðu hverrar þjóðar sem þarna heyrir undir. Þegar maður rifjar upp með hvaða hætti Ísland lenti á þessum gráa lista á sínum tíma þá gat ég ekki skilið annað en svo að mönnum í stjórnsýslunni hafi þótt þetta gerast að nokkru marki fyrirvaraminna en menn höfðu reiknað með áður. Það er það sem ég er að segja þegar ég held því fram að félagsskapur, samtök, hvað sem við köllum það, eins og þessi gangi kannski helst til hratt um gleðinnar dyr hvað varðar nýtingu þess afls sem þeim hlotnast vegna þess samstarfs sem þjóðirnar eru aðilar að, að samtökin eða félagsskapurinn gangi of hratt um gleðinnar dyr hvað það varðar að beita þessum áhrifum. Það er ekki annað að sjá en að svo bara komi ný verkefni (Forseti hringir.) á verkefnadisk hverrar þjóðar sem þarna heyrir undir hverju sinni. En ég er bara að leggja til að við ræðum þetta og skoðum hvernig tekist hafi til og hvert gagnið hafi verið af þessu. En ég er ekki í neinu að draga úr mikilvægi þess að vinna gegn (Forseti hringir.) fjármögnun hryðjuverka og þar fram eftir götunum og peningaþvætti.