156. löggjafarþing — 26. fundur,  4. apr. 2025.

breyting á ýmsum lögum um skatta, tolla og gjöld.

260. mál
[13:50]
Horfa

Pawel Bartoszek (V) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir svarið en árétta þó að þó að um samtök sé að ræða þá er um samtök ríkja að ræða og samtök sem við eigum aðild að. Vissulega er þannig að þessi samtök hafa ekki beina, eins og það heitir, „jurisdiction“, þau hafa ekki beint lagalegt vald yfir Íslandi. Skárra væri það nú. Við erum með stjórnarskrá og erum fullvalda ríki rétt eins og mörg önnur þessara ríkja eru. Það væri því ekki hægt að koma því til leiðar öðruvísi en með einhvers konar stjórnarskrárbreytingu að ákvörðun einhvers ráðgefandi valds myndi hafa beinar afleiðingar hér á landi. Þau geta því aldrei haft önnur völd heldur en það nema með mjög miklum lagabreytingum. Þannig að þetta er ekkert óeðlilegt. Staðreyndin er síðan sú að þetta hefur töluverðar afleiðingar og ég hef ekki heyrt neinn sem vinnur í fjármálageiranum tala um að þetta skipti engu máli og að við getum bara slakað á og látið vera að bregðast við þessu.

Mig langar að gera annað að umtalsefni hér sem kom fram í ræðu þingmanns. Mér fannst hv. þingmaður tala fullfrjálslega um þá staðreynd að þingmenn þurfi í ljósi stöðu sinnar að tilkynna um hana og skrá sig á einhverja ákveðna lista. Mér finnst það ekkert tiltökumál að ég þurfi sem þingmaður á Alþingi Íslendinga að ýta nokkrum sinnum á „accept“ eða merkja við einhven kassa í heimabankanum mínum til að láta vita af því að ég gegni sérstakri stöðu. Við erum hér að ráðstafa með milljarða fjármuni, við erum að setja lög sem hafa áhrif á ótal hluti. Það getur haft áhrif á okkar nánustu líka. Við höfum nánast friðhelgi í öllu sem við gerum. Þannig að mér finnst ekkert óeðlilegt við það að við þurfum endrum og eins að hoppa gegnum smá hringi til að láta vita af því að við erum sannarlega í stöðu sem er aðeins öðruvísi heldur en staðan þarna úti. Mér finnst það því ekkert tiltökumál þó að ég eða mínir nánustu þurfum endrum og eins að svara einhverjum spurningalistum. Ef þingmaðurinn ósammála því þá gefst nú færi á að koma þeirri skoðun á framfæri hér í síðara andsvari.