breyting á ýmsum lögum um skatta, tolla og gjöld.
Virðulegur forseti. Við erum hér að ræða um frumvarp um breytingar á sköttum og gjöldum. Það er ýmislegt í þessu frumvarpi, virðulegur forseti, sem mig langar aðeins að impra á en almennt tel ég að hér sé um mjög jákvæða og þarfa breytingu að ræða heilt yfir og almennt. Hér er verið að tala um heimildir tollyfirvalda til að leita í innrituðum farangri farþega og áhafnar að viðkomandi fjarstöddum, heimild sem hefur klárlega vantað. Ég fagna því að það sé komið og síðan langar mig að ræða hér á eftir aðeins jöfnunargjaldið á hverja kílóvattstund vegna dreifingar raforku, forgangsorku, sem sömuleiðis er alveg gríðarlega jákvætt.
Varðandi heimildir tollsins til að leita í innrituðum farangri, virðulegur forseti, þá tel ég það mjög jákvætt, enda kemur fram í gildandi áhættumati ríkislögreglustjóra um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka að tollyfirvöld hafi skort viðeigandi lagaheimildir til að framkvæma umrædda leit.
Hér hefur verið talað um FATF eða Financial Action Task Force. Árið 1991 gekk Ísland inn í þennan alþjóðlega fjármálaaðgerðahóp um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka. Með þeirri aðild hefur Ísland skuldbundið sig til að samræma löggjöfina að tilmælum stofnunarinnar. Þessi tilmæli, virðulegur forseti, hafa verið leiðandi á heimsvísu. Tilskipanir Evrópusambandsins um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka hafa t.d. verið í samræmi við þau og hafa þær tilskipanir verið innleiddar í íslensk lög. Í einum af þessum tilmælum frá FATF, nr. 32, segir t.d. að aðildarríki skuli gera viðeigandi ráðstafanir til að hafa eftirlit með flutningi fjármuna milli landa, til að mynda með því að kveða á um að tilkynna beri um slíkan flutning. Tilkynningarskyldan gildir um hvers konar flutning á fjármunum, hvort sem um er að ræða með vörusendingum, farangri ferðamanna eða farmanna eða með póstsendingum. Það er akkúrat á þessu sem við erum að taka hér í dag, að uppfylla þessi tilmæli, og lagt til að gerðar verði breytingar á viðurlagaramma ákvæðisins þannig að hann verði skýrari og gegnsærri. Í stað 4. mgr. 172. gr. tollalaga, um brot gegn tilkynningarskyldu er geti varðað sektum, er lagt til að kveðið verði á um að sektir skuli nema 20% af verðmæti þess fjármagns sem ekki var tilkynnt um. Með þessu verða sektarupphæðirnar byggðar á hlutlægum mælikvarða auk þess sem tollinum verður gert miklu auðveldara að beita þessu sektarákvæði og ljúka málum á staðnum.
Það má nefna að í Noregi ber að tilkynna tollyfirvöldum um flutning á öllum fjármunum til og frá landinu umfram 25.000 norskar krónur eða 2.150 evrur. Sé brotið gegn þeirri tilkynningarskyldu í Noregi er lögð á sekt sem nemur 20% af þeim verðmætum sem ekki voru tilkynnt. Ég held að hámarkið sé 30% í norsku lögunum og því er heimildin náttúrlega bara nýtt að hluta til í einhverjum tilfellum. Í Danmörku er þetta öðruvísi. Þá er sömuleiðis þessi tilkynningarskylda á fjármunum en þar erum við komin í 10.000 evrur eða meira, sem er það sem við erum að fara að taka upp hér. Sektirnar þar geta orðið 25% af þeim fjármunum sem voru tilkynningarskyldir, þ.e. frá 10.000 evrum, en aldrei lægri en 5.000.
Þörfin fyrir þessa heimild er sérstaklega mikil þegar kemur að eftirliti með flutningi á fjármunum til og frá landinu þar sem fjármunir kunna í einhverjum tilfellum að vera afrakstur refsiverðrar brotastarfsemi. Tollgæslunni er heimilt að leggja hald á fjármuni ef grunur leikur á að þeir verði notaðir við brot gegn refsiákvæðum almennra hegningarlaga. Slík mál eru þá afhent í kjölfarið til lögreglunnar en samkvæmt gildandi áhættumati greiningardeildar ríkislögreglustjóra um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka frá 2023, eins og ég kom inn á áðan, er áhættan af flutningi fjármögnun fjármuna, þar með talið reiðufjár til og frá Íslandi, metin mikil eða í hæsta áhættuflokki þar sem tollgæsluna skortir viðeigandi lagaheimildir til að framkvæma leit í innrituðum farangri. Þetta, virðulegur forseti, er náttúrlega grafalvarlegt og hefur verið lengi. Bæði lögreglan og tollyfirvöld hafa bent á þessa glufu og verið að kalla eftir þessari heimild. Því verð ég að segja það hér, sem hef nú starfað í lögreglunni í nokkur ár áður en ég kom inn á þennan vinnustað hér, að ég fagna því að það sé verið að stíga þetta skref í dag.
Annað sem hér er til umræðu er sömuleiðis heimild til að sekta vegna þessara brota á tollalögum. Þar er verið að tala um sektir á þann sem af ásetningi eða gáleysi veitir rangar eða villandi upplýsingar um tegundir eða magn eða verðmæti vöru eða vanrækir að leggja fram tilskilin gögn samkvæmt lögum vegna innflutnings. Ég held að þetta sé líka mjög jákvætt skref sem þarna er farið. Þetta getur náttúrlega haft mikil áhrif í för með sér ef slíkt er gert, ef menn eru ekki að skrá vörur réttar inn, og getur haft miklar afleiðingar fyrir ríkissjóð. Ríkið getur verið að verða af tekjum. Eins getur þetta náttúrlega skekkt samkeppnisstöðu fyrirtækja ef fyrirtæki eru að skrá sambærilega eða sömu vöru inn til landsins á mismunandi hátt og tollflokkarnir eru þá mismunandi. Það sem mér finnst jákvætt líka í þessu og áhugavert er varðandi það sem verið er að segja um refsirammann, að starfsmaðurinn sem framkvæmir í raun og veru verknaðinn getur átt á yfir höfði sér kæru og tek undir að það séu sterk rök til þess að það verði bætt við málsgrein sem heimilar að lögaðila sé gerð sekt óháð því hvort brotið sé rakið til saknæms verknaðar starfsmanns eða lögaðila, enda sé brotið drýgt til hagsbóta fyrir lögaðilann sjálfan og hann notið hagnaðar af brotinu. Ég held að þetta sé mjög mikilvægt og skora á okkur í nefndinni að fara vel yfir þennan punkt.
Síðan hér skattfrelsi til að styrkja hreinorkubílana sem er framlengt til ársins 2027 og ég bara fagna því. En svo er hér kannski stóra málið fyrir okkur íbúa landsbyggðarinnar, sem snýr að jöfnun á kostnaði við dreifingu raforku til almennra notenda. Þar erum við að stíga jákvætt skref þar sem dreifiveitur greiða af raforku sem er móttekin frá flutningskerfi flutningsfyrirtækisins eða beint frá virkjunum að frádreginni þeirri raforku sem fer frá dreifikerfinu inn á flutningskerfið. Það á að jafna kostnaðinn við dreifingu raforku og hún er sem sagt 0,41 kr. á hverja kílóvattstund, að fjárhæð jöfnunargjalds vegna skerðanlegs flutnings raforku sé 0,13 kr. á hverja kílóvattstund.
Ég bara fagna því að við séum að stíga þetta skref. Ég vil hins vegar í því samhengi taka undir hér það sem hv. þm. Jóhann Friðrik Friðriksson fór inn á hérna áðan og voru aðeins í umræður um hér í þingsal varðandi það að þetta er ekki í fyrsta skipti sem við reynum að stíga inn í þessa þróun. Ég held að það hafi gerst síðast 2022 og einhverra hluta vegna þá virðist það vera þannig að einhvern veginn náum við aldrei að nýta okkur þetta þar sem þetta hækkar alltaf raforkuna og jöfnuðurinn „feidar“ út í framhaldinu. Þó að þetta sé mjög gott skref, gert með góðum hug og með byggðarlegu sjónarmiði hér, að jafna þennan kostnað, þá velti ég því fyrir mér hvort það sé einhver önnur leið sem við getum farið til að fastsetja það að gjaldið verði jafnt og við þurfum við ekki í raun og veru að vera hér á einhverra ára millibili að elta skottið á okkur og reyna að ná þessum jöfnuði aftur og aftur. Ég er á sama stað og hv. þm. Jóhann Friðrik Friðriksson, ég er ekki með töfralausnina á því en hún hlýtur að vera til þannig að ég hvet bara ráðuneytið til þess að fara í slíka vinnu, að reyna að finna einhvers konar framtíðarlausn á þessu fyrirkomulagi þannig að við hér á Alþingi þurfum ekki að hafa áhyggjur af þessu á nokkurra ára millibili, að þetta sé bara orðið fast.
Virðulegur forseti. Ég ætla ekki að hafa þetta mikið lengra. Ég sé að ég á þrjár mínútur eftir af tíma mínum og í viðleitni til þess að stytta hér þingstörfin þá held ég að ég segi þetta bara gott.