breyting á ýmsum lögum um skatta, tolla og gjöld.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðu sína. Ég vildi spyrja hann út í það, úr því að hann virtist ekki að koma inn á það, að þarna er verið að fella á brott ákveðin ákvæði sem eru þá bara í samræmi við þær breytingar sem hafa verið gerðar á búvörulögum. Hvernig finnst honum þau mál standa út frá þessari umfjöllun, að menn fara í það núna strax að bregðast við því út frá því hvar þau mál standa? Þarf ekki að bíða eftir ákvörðun á niðurstöðum og sömuleiðis frekari umræðu áður en menn fara að breyta öðrum lagabálkum til samræmis? Þetta er spurning sem vaknar enda veit ég að hv. þingmaður hefur skoðun á þeim málum.