breyting á ýmsum lögum um skatta, tolla og gjöld.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir þessa fyrirspurn. Ég skal bara alveg viðurkenna það strax í upphafi að þegar ég var að lesa þetta frumvarp sem hér liggur fyrir, þá skautaði ég svolítið hratt yfir þennan kafla um búvörulögin. Ég var meira að fókusera á hitt þannig að ég er kannski ekki alveg nógu vel undirbúinn, svo ég segi það nú bara hér, undir þá umræðu. En ég er almennt fylgjandi því að við sjáum fyrir endann á því sem við erum að gera áður en við förum í einhverjar breytingar á ákveðnu verklagi, ákveðnum lögum, þ.e. að við séum komin til enda áður en við förum í slíkar breytingar. Ég held að það sé það sem hv. þingmaður er svolítið að kalla eftir og ég er alveg sammála því. Ég held að það sé mikilvægt við sjáum fyrir endann á því hvert þessar breytingar leiða og hvar þetta dómsmál sem nú er í gangi mun enda áður en við förum að gera einhverjar breytingar á lögunum. Ef ég er nógu skýr fyrir hv. þingmann þá held ég að þetta hafi kannski verið það sem hann var að fiska eftir í andsvari sínu.