156. löggjafarþing — 26. fundur,  4. apr. 2025.

breyting á ýmsum lögum um skatta, tolla og gjöld.

260. mál
[14:10]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S):

Virðulegur forseti. Ég þoli ekki bandormsfrumvörp. Ég átta mig á því að til að mynda í tengslum við fjárlög þá er mikil hefð fyrir stórum og miklum bandormi er lýtur að tekjuhlið frumvarpsins. En það er einmitt m.a. út af andsvarinu sem kom hérna áðan sem ég þoli ekki bandormsfrumvörp. Í þessu frumvarpi erum við með breytingar á tollalögum, við erum með breytingar á lögum um virðisaukaskatt, breytingar á lögum um umhverfis- og auðlindaskatt, erum með breytingar á lögum um tekjuskatt, breytingar á lögum um póstþjónustu, breytingar á lögum um jöfnun kostnaðar við dreifingu raforku og bíddu, svo var eitthvað um búvörulögin líka. Féll það undir eitthvað af þessu, virðulegur forseti? Það er í breytingum á tollalögunum.

Svo heitir þetta frumvarp „um breytingu á ýmsum lögum um skatta, tolla og gjöld (aðgerðir gegn peningaþvætti, viðurlög o.fl.)“ og þess vegna er eðlilegt að þegar þingmenn sjá þetta á dagskránni haldi þeir að það sé fyrst og fremst kannski peningaþvættisþátturinn sem sé hér til umræðu en hér er bara alveg ofboðslega mikið af alls konar málum. Ég skil það alveg, stundum þarf að laga til í lagabálkum og þá er það stundum sett fram í bandormi en ég verð að viðurkenna að ég sé ekki alveg ástæðuna fyrir því í þessu tilfelli.

Að því sögðu þá er það þetta með peningaþvættið og FATF-listann og allar ráðstafanir sem við höfum farið í í kjölfarið sem er kannski það sem mig langaði einna helst að koma inn á. Ég var hér á þingi þegar við lentum inn á þessum margumrædda gráa lista og auðvitað varð uppi fótur og fit. Þetta var hræðilegt. Auðvitað þurfti að bregðast hratt við. Ég hef auðvitað líka heyrt það sem sumir hafa nefnt hér, hvort við höfum einhvern veginn orðið einhvers konar fórnarlamb annarra stærri ríkja sem þurftu einhvern veginn — það þurfti að sýna fram á eitthvað eða eitthvað þess háttar, kann vel að vera. Engu að síður geri ég bara kröfu um að þessi mál séu í lagi hjá okkur og við höfum gert alls konar breytingar í tengslum við þetta samstarf okkar í FATF, þ.e. á peningaþvættislöggjöfinni.

Virðulegur forseti. Ég spurði hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra hérna frammi hvort hann bæri ábyrgð á þessum lagabálki en ég held að það sé rétt hjá okkur að hæstv. dómsmálaráðherra beri heildarábyrgð á honum. En svo féllu undir svo margir lagabálkar að það þurfa ýmsir aðrir ráðherrar að koma að. Það gerir þetta kannski svolítið flókið og gegnsæið verður oft minna. Ég vil því minna á það að í nefndaráliti um breytingar á lögum á síðasta kjörtímabili — ég held það hafi verið á síðasta þingi, þetta voru lög um sóknargjöld eða eitthvað slíkt og það kom frá dómsmálaráðherra og það var m.a. til að bregðast við aðgerðum gegn peningaþvætti og öðru — þá samþykktum við ekki allar þær breytingar sem lagðar voru til í frumvarpinu eins og það kom frá hæstv. ráðherra. Ég ætla bara að geta þess að það var oft þannig að jafnvel þó að ég væri stjórnarliði þá og hæstv. ráðherra væri úr mínum eigin flokki þá var það ekki afgreitt sjálfkrafa út úr hv. allsherjar- og menntamálanefnd heldur tókum við sem sagt einn liðinn og sögðum bara: Heyrðu, hæstv. ráðherra og ráðuneyti þitt, þið þurfið bara að skoða þetta aðeins betur. En það sem við settum líka inn í þetta nefndarálit var, virðulegur forseti, setning þess efnis að við vorum að beina því til dómsmálaráðherra að láta gera úttekt á framkvæmd laga um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka, sem eru nr. 140/2018, með hliðsjón af áætlun stjórnvalda vegna aðgerða gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka. Þessi aðgerðaáætlun er dagsett 2021–2023. Ég veit ekki hvort það sé komin ný aðgerðaáætlun en ég veit að það stóð til að endurskoða hana samhliða þessari lögbundnu endurskoðun á áhættumati ríkislögreglustjóra. Við lögðum til að í slíkri úttekt verði farið yfir framkvæmd laganna og áhrif þeirra á íslenska löggjöf. Jafnframt verði í úttektinni litið til þess hvernig innleiðing á tilskipunum hafi farið fram innan annarra aðildarríkja að EES-samningnum.

Það er svolítið þetta sem var aðeins að koma fram hérna í umræðunni áðan, að við erum mörg hver hér á þingi, bæði núna og á síðasta þingi, mjög hissa á framkvæmd laganna. Eitt er eins og hv. þm. Pawel Bartoszek nefndi hér áðan í andsvari: Er ekki allt í lagi að við sem þingmenn hoppum í gegnum einhverja aukahringi með því að svara einhverjum fyrirspurnum hjá bankanum? Jú, jú, ekkert mál, ég hef ekkert við það að athuga en það er öllu sérstakara þegar dóttir mín skráir sig í sambúð með kærastanum og kærastinn fær bréf frá einhverri stofnun um að nú sé hann skráður á einhvern lista út af því að hann hafi tengingu við einhvern áhættuaðila sem er þá væntanleg tengdamóðir, þegar ungbörn fá gluggapósta um eitthvert slíkt. Það er eitthvað skrýtið við þetta, virðulegur forseti, og ég velti því fyrir mér hvort framkvæmdin sé með sama hætti í öðrum ríkjum sem við berum okkur gjarnan saman við. Móðir mín hefur reglulega kvartað yfir því að þurfa að lenda í alls konar svona úttektum einmitt og svo hoppa í gegnum hringina því hún er auðvitað tengd þessari stórhættulegu konu sem hér stendur. Það að kaupa bíl fyrir hana, fara inn á bílasölu og ætla að kaupa bíl — hún hringdi í mig hingað og skammaðist yfir því að þessi heimsókn hefði tekið hana svo marga klukkutíma vegna þess að bílasalinn var alveg miður sín þegar hún svaraði því sannleikanum samkvæmt að hún hefði einhverjar tengingar við einhvern af okkar æðstu embættismönnum eða þingmönnum eins og við föllum undir. Þá varð uppi fótur og fit hjá grey bílasalanum sem þurfti að taka til einhverja nýja pappíra og uppfylla eitthvað og þetta tók sinn tíma. Móðir mín, virðulegur forseti, er nú ljósmóðir sem fær bara tekjur sínar frá íslenska ríkinu og ætti þar af leiðandi ekki að þurfa að falla undir það að vera í einhverri áhættustarfsemi, en allt í lagi.

Ég ætla líka að fá að nefna hér eitt dæmi, því að það er eitt að við hoppum í gegnum þessa hringi gagnvart okkar fjármálafyrirtækjum. Sú sem hér stendur hefur mikið dálæti á alls konar fjármálaþjónustu í gegnum símana okkar. Þannig hef ég t.d. notað Aurappið — og þetta er ekki kostuð auglýsing — mér til hægðarauka að millifæra yfir á fólk ef ég skulda því. Ég er ekki viðskiptavinur hjá bankanum, ég er ekki að taka lán hjá honum, ég er ekki að leggja inn launin mín eða neitt þess háttar, en allt í einu bar svo við að ég gat ekki lengur millifært yfir á vinkonu mína sem hafði verið að leggja út fyrir mig eða eitthvað slíkt og þetta var risavandamál. Ég fer að tala við Aur og þeir segja: Já, en þú svaraðir ekki áreiðanleikakönnuninni. Jú, jú, ég svaraði vissulega áreiðanleikakönnuninni. Já, en þú sagðir ekki hver tengslin þín væru. Vegna þess að áreiðanleikakönnunin var bara ekkert uppsett þannig. Hún var bara: Hefur þú einhverjar tengingar við einhvern af eftirtöldum? Svo bara krossaði fólk við það og þá gerðist ekkert meira. Svo loksins þegar ég fékk nýja áreiðanleikakönnun og gat sagt að jú, það væri nú ég sjálf, þá krafðist þetta fyrirtæki þess að fá skattframtölin mín tvö ár aftur í tímann. Ég hafði samband við viðkomandi fyrirtæki og sagði: Bíddu, hvað í lögunum eða reglunum — hverju sætir? Nú er ég ekki að taka lán hjá viðkomandi fyrirtæki eða í bankaviðskiptum við það. Ég er einfaldlega að borga töluverða fjárhæð fyrir að millifæra peninga milli reikninga sem eru ekki hjá viðkomandi fyrirtæki. Greyið starfsmaðurinn þarna varð örugglega sveittur að þurfa að svara þingmanni þessu öllu og þá var mér tjáð að Fjármálaeftirlitið hefði gert athugasemdir við starfsemi þessa fyrirtækis því nú fellur það undir það að vera fyrirtæki á fjármálamarkaði. Þar af leiðandi þyrfti að gera einhverjar auknar ráðstafanir og þar af leiðandi væri ekki hægt að leyfa mér að borga fyrir að millifæra hjá fyrirtækinu nema skila skattskýrslu.

Það eru svona dæmi, þetta stendur ekki í lögunum, ég er nokkuð viss um það. Ég veit ekki einu sinni hvort það sé í reglugerðinni. Ég hef ekki lesið mig í gegnum ákvarðanir Fjármálaeftirlitsins hvað þetta varðar en þegar við erum að tala um gullhúðun eða blýhúðun þá held ég að þetta verði stundum líka bara í framkvæmdinni sjálfri. Ég hef alveg heyrt endurskoðendur, bílasala, fasteignasala og fleiri tala um þessa löggjöf með þeim hætti — vegna þess að það eru töluvert miklar heimildir til að sekta fólk og bregðast við ef fólk brýtur á þessum reglum — að fólk hræðist þetta, skiljanlega og ég óttast bara að kerfið okkar hafi búið til eitthvert svona, virðulegur forseti, það fyrsta sem mér dettur í hug er einhvers konar skrímsli utan um þessa löggjöf sem þarf ekkert að vera svona. Þess vegna, virðulegur forseti, beindum við því til hæstv. dómsmálaráðherra að gera úttekt á lögunum og framkvæmd laganna, hvernig verið væri að framkvæma þetta þarna úti.

Ég hjó eftir því að í andsvörum við hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra var hann spurður út í það hvort ekki væri ástæða til að fara í heildarendurskoðun á þessu. Hæstv. ráðherra tók því vel en ég hygg að málaflokkurinn í heild sinni sé kannski frekar undir hæstv. dómsmálaráðherra. Þess vegna held ég að sé mikilvægt að við séum með augun opin fyrir þessu og ég bara vil beina því bæði til hæstv. ráðherra en ekki síður til ríkisstjórnarinnar allrar að þau þurfa að taka þetta föstum tökum. Ég veit að ég á mér bandamann í þessum skoðunum mínum því að ég veit að hæstv. ráðherra Hanna Katrín Friðriksson hefur verið mér sammála. Við og fleiri hér á síðasta þingi ræddum að það hlyti að vera eitthvað bjagað á bak við það hvernig við værum að framkvæma þessa löggjöf og þá er enginn að tala gegn því að við séum hér með skýra löggjöf sem geti tekið á peningaþvætti; ofboðslega mikilvægt. En ég er ekki viss um að leiðin til þess að taka á peningaþvætti sé að eltast við móður mína þegar hún er að kaupa sér bíl eða væntanleg tengdabörn mín eða barnabörn. Ég held að það sem þurfi að gerast hér er að beina augum að einhverjum allt öðrum aðilum í slíku og það þurfum við svo sannarlega að gera en gætum mögulega létt á alls konar óþarfaveseni, ef ég leyfi mér að orða það með þeim hætti.

Virðulegur forseti. Það tengdist líka þessari umræðu hérna þegar við vorum að tala um raunverulega eigendur og ég held að stór hluti Íslendinga hafi fengið bréf um það því að í þeirri löggjöf er nóg að einhver hafi einhvern tíma setið í sóknarnefnd með einhverjum sem varð síðar þingmaður eða stjórn kvenfélags eða eitthvað slíkt. Það var til að mynda eitt dæmi um þetta. Það var líka tekið fyrir og ég veit að forseta þings barst bréf um það á sínum tíma hvort ákveðið fyrirtæki úti í bæ væri að ganga fulllangt með heimildum sínum til að safna upplýsingum um aðila sem væru á svona áhættulista þegar margir fengu bréf um að þeir væru skráðir í slíkt og hvort það hreinlega stangaðist á við persónuvernd og annað. Ég held að í þessum málum sé að mörgu að huga og ég hvet okkur þingmenn til að sameinast um það, annars vegar um mikilvægi þess að þessi löggjöf virki og virki þannig að hún geti raunverulega komið í veg fyrir peningaþvætti og annan óþrifnað sem við viljum ekki sjá í okkar samfélagi en hins vegar líka að hún sé til þess gerð að vera ekki að auka óþarfaálag og -flækjustig bara á almenna borgara, jafnvel þótt það vilji svo til að þeir séu mögulega tengdir einhverjum sem sitja á hinu háa Alþingi.