breyting á ýmsum lögum um skatta, tolla og gjöld.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur fyrir ágæta umfjöllun um brýnt mál sem er að ríkið íþyngi borgurunum ekki að ástæðulausu. Við vitum auðvitað að á þeirri vegferð eru markmiðin yfirleitt göfug og góð, en framkvæmdin getur orðið harla vafasöm og þannig að hún fari raunverulega að skaða möguleika fólks til að halda uppi þróttmiklu atvinnulífi og annað eins. Ég veit auðvitað að menn benda á að þetta sé ekkert svo umfangsmikið en, eins og ég segi, þegar þetta leggst allt saman þá þarf ríkisvaldið einfaldlega að huga að sinni ábyrgð. Hitt er svo hvernig vinnsla svona mála er hér í þinginu, með bandormsfrumvörpum. Nú er maður nýr hérna og ég er sammála hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur um þetta atriði, auðvitað er maður síst að bera mönnum á brýn að vera að fela mál inni í bandormi, en engu síður eru auðvitað líkur til þess þegar vinnubrögðin eru svona. Fyrirsögnin varðar peningaþvætti en síðan eru þarna margvíslegir liðir um margvísleg mál. Jú, auðvitað er það á ábyrgð þingmanna að kynna sér þau mál sem þarna eru undir og maður gerir ráð fyrir því og býst við því. En maður spyr sig: Er ekki tilefni til að hafa áhyggjur af þessu fyrir hönd t.d. almennings sem reynir að fylgjast með umræðunni á Alþingi, reynir að setja sig inn í dagskrána sem getur verið æðiflókið að ná tökum á, sérstaklega á síðustu og verstu tímum. Mér er sagt að það hafi verið tímabil þar sem flæði dagskrárinnar var aðgengilegra líka fyrir þingmenn en það er núna. Þetta hefur verið svona seint á kvöldin, ýmislegt að koma inn og margvíslegt af því tagi. Maður spyr sig einmitt um upplifun almennings af því þegar fyrirsögnin segir eitt, en svo er efni frumvarpsins eitthvað allt annað. Er þetta ekki eitthvað sem er vert að taka umræðu um? Það er sú spurning sem ég myndi beina kannski til hv. þingmanns sem hefur reynslu hér á þingi.