breyting á ýmsum lögum um skatta, tolla og gjöld.
Virðulegur forseti. Aftur þakka ég hv. þingmanni fyrir andsvarið. Já, ég held við séum bara sammála varðandi skýrleika laganna og það færi betur á því að vera ekki með mjög ótengd mál í sama frumvarpi. En þegar ég er spurð um hvernig þessu hafi háttað til þegar við vorum að samþykkja þessi lög á sínum tíma þá verð ég nú að viðurkenna að ég þyrfti aðeins að fletta því betur upp, bæði í tölvu og minni mínu. Ég minnist þess að hafa setið í hv. efnahags- og viðskiptanefnd þegar þessi mál voru að koma og þá komu þau flest frá dómsmálaráðuneytinu og þá var þetta einmitt breyting á alls konar lagabálkum, en það tengdist þó þessu, sem sagt aðgerðum gegn peningaþvætti þannig að það var skýrara. Síðan þá höfum við verið að fá reglulega inn svona frumvörp eins og þetta. Ég nefndi að við hefðum fengið á síðasta kjörtímabili frumvarp sem varðaði sóknargjöld og trúfélög vegna þess að það getur auðvitað verið hætta á því að það sé verið að nota slík félög í einhverjum annarlegum tilgangi og þess vegna þurfti að breyta því. Auðvitað tekur það okkur svolítinn tíma að fara í gegnum alla lagabálka okkar til að hnýta fyrir þetta. Ég er mjög hlynnt alþjóðlegu samstarfi og ég held að FATF-samstarfið sé bara af hinu góða, ég held að það sé mjög mikilvægt að við séum með sambærilegt regluverk og við tryggjum það að hér sé engin gróðrarstía fyrir skipulagða brotastarfsemi og einhverja sem vilja koma sér undan lögum annars staðar. En það var alveg ljóst að eftir að við lentum á gráa listanum og fengum þessa úttekt þá fórum við mjög hratt af stað í þeim málum sem við gátum farið í og svo komumst við af þessum gráa lista. En við vissum að við yrðum að halda áfram og það er auðvitað úttekt á þessu reglulega og við fáum einhverjar ábendingar. Ég minnist þess ekki samt sem áður að það hafi verið það mikill hraði og asi að við höfum ekki verið að skoða málin vel. Ég hef þann grun að þetta sé frekar í framkvæmd og útfærslu laganna heldur en endilega í lagasetningunni. (Forseti hringir.) En ég treysti mér þó ekki til að dæma fyllilega um það og þess vegna er svo mikilvægt að það sé gerð núna úttekt (Forseti hringir.) á annars vegar lögunum, borið saman við lög í öðrum löndum, hins vegar framkvæmdinni sjálfri.