breyting á ýmsum lögum um skatta, tolla og gjöld.
Virðulegur forseti. Ég er sammála þingmanninum að því leytinu að við sem hér sitjum erum forréttindastétt og það eru ofboðslega mikil forréttindi að vera kosinn á Alþingi Íslendinga og vinna fyrir íslensku þjóðina. Þar af leiðandi er hægt að gera ríkar kröfur til okkar, bæði út frá siðferði en líka út frá þeim þáttum sem hv. þingmaður nefndi hér áðan og ég er því alls ekki ósammála, alls ekki. Mér finnst mjög mikilvægt að regluverk okkar sé með þeim hætti að það leiki enginn grunur á því að hér sé hægt að múta þingmönnum, hvort sem er með innlendu fjármagni eða erlendu fjármagni og kaupa atkvæði eða eitthvað slíkt. Ég veit að það er grunnurinn að hugmyndafræðinni á bak við svona regluverk. Ég held að ég og hv. þingmaður getum verið algerlega sammála hvað það varðar. Ég nefndi hérna sérstaklega Aurappið og ítrekaði að ég væri að nota það til að millifæra en væri ekki með reikningsviðskipti. Ég minnist þess varla að ég hafi verið að senda skattskýrslur til bankans míns, en vissulega svarar maður áreiðanleikakönnun. Ég var að reyna að nefna þetta sem dæmi um að það er kannski ekki, þrátt fyrir að ég sé þingmaður, þörf á því hvað varðar þjónustu sem ég kaupi mér í gegnum einhver snjallforrit, hvort sem það er að leggja bílnum mínum eða millifæra á reikninga, á milli kreditkortsins míns á reikning hjá öðrum eða einhverja annars konar þjónustu, að fyrirtækið þurfi að eiga skattskýrslu mína tvö ár aftur í tímann. Ég er mjög ósammála því. Ég veit ekki hvort hv. þingmaður sé sammála því að það sé bara í fínu lagi og eðlilegt að einhver fyrirtæki sem þingmenn eiga í viðskiptum við geti krafist skattskýrslna. Ekki það að tekjur mínar eru bara gefnar upp á heimasíðu þingsins þannig að það er ekki vandamálið. En aðallega er ég nú bara að hugsa um að við séum ekki að búa til óþarfaskriffinnsku og skrifræði og að fyrirtæki í landinu séu að takast á hendur slíka ábyrgð (Forseti hringir.) sem sé algjörlega óþörf og hafi ekkert með markmið laganna sem slíkra að gera.